Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 16.11.1984, Page 55
ingin er sú að þjóðartekjur eru nú hinar sömu á mann og fyrir
10 árum síðan, það eru eftirmæli framsóknaráratugarins.
Pólitísk dekurverkefni kosta þjóðina offjár. Með KRÖFLU
greiðir þjóðin nú milljón á degi hverjum. Atvinnuvegunum
verður að búa heilbrigð rekstrarskilyrði og beina fjárfesting-
unni í arðbæra atvinnustarfsemi sem skilar tekjum en ekki út-
gjöldum til þjóðarbúsins.
Jafnhliða þarf að gera víðtækar kerfisbreytingar í efna-
hagsmálum. Tekjuskatt á launatekjur á að afnema, leggja
stighækkandi skatt á stórfyrirtæki og stóreignamenn og verja
þeim skatttekjum til að gera stórátak í húsnæðismálum unga
fólksins. Um leið skal koma á afkomutryggingu, kaupmátt-
artryggingu mannsæmandi lágmarkslauna, beinum greiðsl-
um fjölskyldubóta til barnmargra fjölskyldna, tekjutrygg-
ingu aldraðra og öryrkja og sameiginlegum lífeyrissjóði fyrir
alla landsmenn. Breyta á söluskatti í virðisaukaskatt, afnema
undanþágufarganið og lækka skattprósentuna m.a. í því
skyni að bæta innheimtu.
Raunvexti á að lækka. Framkvæmdastofnun ríkisins á að
leggja niður, ríkisbönkum á að fækka og gerbreyta fjárfest-
ingarsjóðakerfinu til einföldunar þannig að jafnræði sé milli
atvinnugreina og hagur húsbyggjenda tryggður. Núverandi
sölu- og verðlagskerfi landbúnaðarafurða á að endurskoða.
Sambærilegar kerfisbreytingar þarf að gera á samskiptum
einstaklinga og stofnana til einföldunar og aukins frjálsræð-
is. Auka á valddreifingu en afnema skrifræði. Auka á völd og
verkefni sveitarfélaga og samtaka þeirra, setja lög er tryggi
upplýsingaskyldu hins opinbera gagnvart almenningi, stofna
embætti umboðsmanns Alþingis og setja lög um skyldur og
starfsemi stjórnmálaflokka. Auka á frjálsræði í fjölmiðlum
og setja lög og reglur um skyldur og ábyrgð fjölmiðla.
Það er hlutverk Alþýðuflokksins að halda öfgaöflunum í
skefjum og koma á samstöðu við framsýna aðila í sókn til
aukins réttlætis og jafnaðar. Nú er meiri þörf á slíkri sam-
vinnu til þjóðarsáttar en nokkru sinni fyrr og því er það
53