Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 16.11.1984, Side 66
Flokksþing Alþýðuflokksins telur því brýnt að fram fari
endurmat á störfum og kjörum láglaunahópanna og hefð-
bundnum kvennastörfum þannig að réttlátt mat og sann-
gjörn laun verði viðurkennd fyrir þessi störf.
Húsnœðismál
42. flokksþing Alþýðuflokksins átelur svik núverandi rík-
isstjórnar í húsnæðismálum. Aldrei hefur verið erfiðara fyrir
ungt fólk að afla sér húsnæðis. Bæði eru húsnæðismála-
stjórnarlán lág og bankalán eru stutt og gegn okurvöxtum,
þannig að margir kikna undan greiðslubyrðinni.
Alþýðuflokkurinn krefst þess að auknir verði valkostir í fé-
lagslegum íbúðabyggingum og að þegar verði hafist handa
við fjármögnun húsnæðislánakerfisins, þannig að 80% láns-
hlutfalli verði náð í áföngum.
Launa- og kjaramál
Kjör íslenzkra launamanna eru nú lakari en þau hafa verið
um áratuga skeið. Það er öllum ljóst, að launakjör á íslandi
hafa ekki verið í neinu samræmi við þjóðartekjur á undan-
förnum árum. Gífurlegir fjármunir, sem launafólkið hefur
skapað með striti sínu, hafa runnið í arðlausar fjárfestingar,
sem ekki hafa komið þjóðinni að nokkrum notum. Þessum
fjármunum hefur verið úthlutað eftir pólitísku helminga-
skiptakerfi, sem nú verður að brjóta niður, ef unnt á að reyn-
ast að byggja upp nýtt og öflugt atvinnulíf í landinu, sem er
grundvöllur betra lífs og betri afkomu allra launamanna.
Sú skelfilega staðreynd blasir við að ísland er nú talið í hópi
láglaunalanda og fjölþjóðafyrirtæki hafa sýnt því áhuga að
reisa hér á landi verksmiðjur á grundvelli þess hve ódýrt
vinnuaflið er. Almennar launatekjur nægja hvergi til reksturs
heimilanna. Svo endar nái saman verða fjölskyldur að leggja
á sig ómælt strit, vinna myrkranna á milli, þar sem vinnu er
að hafa. En víða hefur atvinnuleysi gert vart við sig og er
hætta á því að það aukist enn. Afkomumöguleikarnir hafa
64