Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 16.11.1984, Page 73
Þessa kosti bendir Alþýðuflokkurinn á þegar talað er um
uppbyggingu atvinnuveganna og nýja atvinnustefnu:
1. Aukin framleiðni og meiri vöruvöndun í úrvinnslu sjávar-
afla, nýting og vinnsla fleiri fisktegunda.
2. Við úrvinnslu landbúnaðarafurða er hægt að ná meiri ár-
angri, t.d. með fullvinnslu á skinnum og gærum, og úr-
vinnslu á margvíslegum dýrmætum efnum úr sláturaf-
urðum.
3. íslendingar eiga mikinn fjársjóð í menntun og þekkingu.
Útflutningur og sala á þessari þekkingu getur orðið mikil
lyftistöng fyrir allan íslenzkan iðnað og menntastofnan-
ir. Þá eiga íslendingar að nýta menntastofnanir sínar til
sölu á þekkingu til þegna annarra ríkja sem hingað geta
sótt menntun í margvíslegum fræðum.
4. Ferðamálaþjónusta og skipulagning ferða erlendra ferða-
manna til íslands er einn af mikilvægari þáttum atvinnu-
uppbyggingar. Þar er nauðsynlegt að gera áætlanir til
langs tíma og stunda atvinnugreinina í sátt við náttúru
landsins.
5. Fiskeldi sem byggir á gnægð af heitu vatni og tiltölulega
ódýru fóðri. Jafnframt þarf að gera rannsóknir á göngu
lax í hafinu og hvort hafbeit og laxveiðum almennt stend-
ur ógn af fiskveiðum annarra þjóða. Einnig þarf að
stefna að eldi sjávarfiska með það fyrir augum, að reyna
að draga úr sveiflum í fiskafla.
6. Sölumennsku á íslenzkum útflutningsafurðum verður að
stórauka, en þar er á ferðinni grundvallaratriði, svo unnt
sé að efla og auka allar útflutningsatvinnugreinar þjóð-
arinnar.
7. Rafeindaiðnaður er sú grein sem íslendingar hafa sýni-
lega möguleika á að gera að stóriðnaði, einkum hvað
snertir tæknibúnað til fiskvinnslu og sjávarútvegs.
8. Lífefnaiðnaður af mörgu tagi á mikla framtíð og verður
að fá að þróast. Má þar nefna framleiðslu á efnum til
lyfjagerðar.
71