Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 16.11.1984, Side 74
9. Efling matvælaiðnaðar er mikilvæg, og þar verður að
stuðla að bættri menntun starfsfólks.
10. Endurvinnsla á ýmsum efnum sem til falla, getur verið
álitlegur kostur en þarf þó að gaumgæfa vandlega.
11. Efling atvinnuvegarannsókna er skilyrði þess að flestar
fyrrnefndar greinar eigi framtíð fyrir sér. íslendingar
leggja mun minni fjármuni til þessara rannsókna en ger-
ist í helztu nágrannalöndum.
12. í allri umræðu um atvinnustefnu til aldamóta verður að
hafa hugfast, að stór hópur þjóðfélagsþegna getur ekki
tekið þátt í hinu almenna atvinnulífi. Við mótun at-
vinnustefnu verður að tryggja að næg atvinnutækifæri
skapist fyrir öryrkja, annað hvort á vernduðum vinnu-
stöðum eða innan hins almenna atvinnurekstrar.
Við val á nýjum atvinnugreinum og stuðningi við þær, ber
að meta, hvort þær gera það mögulegt að greiða góð laun til
starfsfólks og stuðli þannig að því að ísland verði ekki lengur
láglaunaland.
Það er algjört grundvallaratriði við atvinnuuppbyggingu
og atvinnustefnu til aldamóta, að einhver sá hvati sé fyrir
hendi, er efli menn til dáða við atvinnuuppbyggingu. Sá hvati
felst auðvitað í stjórn efnahagsmála, og þeirri verkaskipt-
ingu, sem verður að vera á milli þeirra þriggja rekstrarforma,
sem þróast hlið við hlið í blönduðu hagkerfi. Sú breyting
verður aldrei framkvæmanleg, nema núgildandi sjóðakerfi
og helmingaskiptakerfi Sjálfstæðisflokks og Framsóknar-
flokks verði brotið upp.
Vinnan er undirstaða velferðar og velsældars og þess hag-
sældarþjóðfélags sem er rauði þráðurinn í jafnaðarstefn-
unni. Ný atvinnustefna er því grundvallaratriði í framtíðar-
stefnu Alþýðuflokksins.
72