Ægir - 01.04.2023, Qupperneq 8
8
„Maður bara brosir út að eyrum,“ seg-
ir Siglfirðingurinn og útgerðarmaður-
inn Rögnvaldur Björnsson. Röggi, eins
og hann er kallaður, festi nýlega kaup
á sínum fyrsta bát og er á sinni fyrstu
vertíð á strandveiðum.
Spurður hvernig Siglfirðingur endi á
Raufarhöfn og nú Kópaskeri, þar sem
hann rær þegar viðtalið er tekið, svarar
hann því til að fyrir um áratug hafi
hann búið á Akureyri og fundist at-
vinnuframboð í bænum bágborið. Hann
hafi séð auglýsingu þar sem leitað var
að starfsmanni í grásleppuverkun í
frystihúsinu á Raufarhöfn. Hann hafi
ákveðið að slá til. „Ég var kominn með
nóg af Akureyri og var eitthvað að
glugga í dagskrána þegar ég sá þessa
auglýsingu,“ rifjar hann upp.
Röggi hefur verið með annan fótinn á
Raufarhöfn undanfarin tíu ár eða svo.
Hann á hús í þorpinu, sem hann er að
gera upp, en á líka íbúð á Akureyri.
Hann segir glettinn að konan hafi á ein-
um tímapunkti ekki tekið annað í mál en
að hafa einnig aðsetur á Akureyri.
Handfærin kveiktu í honum
Undanfarin ár hefur Röggi róið á neta-
bátnum Kristni ÞH, sem er í eigu útgerð-
ar Hólmsteins Helgasonar á Raufarhöfn.
Hann keypti sér hins vegar flugfisk, bát
frá Mótun, fyrir síðustu strandveiðiver-
tíð. Hann nýtti síðasta sumar og vetur-
inn til að taka bátinn í gegn og búa
hann undir veiðarnar. Það var svo 2.
maí síðastliðinn sem hann fór í sinn
fyrsta atvinnuróður á bátnum, sem ber
nafnið Perla ÞH 33.
„Ég hef brennandi áhuga á þessu. Það
eru tvö eða þrjú ár frá því ég prófaði í
fyrsta skipi að fara á handfæri á sjó og
það kveikti í mér,“ útskýrir hann og bæt-
ir við að það skipti hann mestu máli að
báturinn virki eins og til sé ætlast. Á
Rögga má heyra að aflabrögð séu nánast
aukaatriði, enda er veiði á Norðaustur-
horni landsins á þessum árstíma iðulega
treg.
Vonast til að fá að veiða út sumarið
Spurður hvernig honum lítist á sumarið
svarar Röggi því til að auðvitað vonist
hann til að veiðarnar verði ekki stöðv-
aðar í þann mund sem vænn fiskur
gengur á norðaustursvæðið. Á því hafi
hann hins vegar ekki stjórn nema að því
leyti að hann getur ákveðið að færa sig
á annað svæði fyrir næstu vertíð, ef
honum líst þannig á. Fimm bátar fóru
vestur á bóginn frá Raufarhöfn fyrir
þessa strandveiðivertíð, vegna fyrir-
komulags veiðanna.
Röggi er hins vegar ekki mikið að
velta sér upp úr því. Hann lætur fyrir-
komulagið ekki varpa skugga á gleðina
sem felst í því að róa á eigin bát og
stunda handfæraveiðar. „Þetta er bara
svo skemmtilegt. Ég finn fyrir ástríðu
gagnvart þessum veiðum og brenn fyrir
þetta. Það er það sem drífur mig áfram,“
segir hann að lokum.
Sjómennskan
Rögnvaldur Björnsson keypti sér flugfisk og er
á sinni fyrstu strandveiðivertíð
„Ég finn fyrir ástríðu gagnvart
þessum veiðum“
„Þetta er bara svo skemmtilegt,“
segir Röggi um strandveiðarnar.
Rögnvaldur landar strandveiðiafla á Kópaskeri nú í maí.
TIL HAMINGJU
MEÐ SJÓMANNADAGINN
Við tökum útstímið með ykkur
Auglýsingfyrirskrufublaðið.indd 1 5.5.2023 10:03:51