Ægir

Årgang

Ægir - 01.04.2023, Side 28

Ægir - 01.04.2023, Side 28
28 bætir strax við að með nútímatækninni hafi allur feluleikur horfið. „Nú veit mað- ur nákvæmlega hvar allir eru og hægt að lesa út hvernig mönnum gengur að fiska.“ Tæknin leysir ekki þekkinguna og reynsluna af hólmi En þó æ stærri skjáir, tæki og tól ein- kenni vinnuumhverfi þeirra Sigtryggs og Angantýs Arnars síðari árin eru þeir algjörlega sammála um að tæknin ráði ekki úrslitum um hvernig gangi að fiska. Engin tækniskref geti komið í staðinn fyrir reynsluna. „Lykilatriðin eru vitneskjan og reynslan sem við nýtum okkur og þar skilur á milli þeirra sem búnir eru að vera lengi í þessu starfi og þeirra sem yngri eru og reynsluminni. Við tveir er- um af þeirri kynslóð sem ólst upp í starf- inu við að spá meira í göngur fisksins, árstímann, ástand sjávar, sjávarhita og aðra slíka þætti. Hvenær kemur karfi á slóðina, hvenær er líklegt að ufsinn fari að ganga og svo framvegis og framvegis. Það eru engin tæki sem segja okkur þetta nákvæmlega þó eflaust sé hægt að setja upplýsingar inn í einhver tölvu- kerfi og kalla fram alls kyns spár. Með öðrum orðum er það í okkar huga þann- ig að tækniþróunin getur ekki komið í staðinn fyrir þekkingu og reynslu en tæknin er hins vegar mjög mikilvægt hjálpartæki til að ná árangri. En kannski verður einmitt þetta eitt af því sem gervigreindin mun á komandi árum taka yfir. Hver veit?“ segja þeir sposkir. Samfélag skipstjóra á miðunum Skipstjórarnir tveir segjast þakklátir fyr- ir tímann á sjónum og að hafa fengið að kynnast fjölda fólks bæði í landi og úti á sjó. „Ég hef vegna þessara tímamóta svo- lítið hugsað um það að undanförnu,“ seg- ir Angantýr Arnar, „hvort maður hefði viljað hafa þennan feril einhvern » Báðir eru þeir Angantýr Arnar og Sigtryggur uppaldir við við sjávarsíðuna, Angantýr Arnar á Hauganesi og Sigtryggur á Seyðisfirði. Þeir muna því ekki eftir öðru en að sjórinn hafi verið í stóru hlutverki í daglegu lífi og væntanlega mun tengingin við sjóinn áfram verða sterk þó þeir hafi nú sett punkt aftan við sjómennskuna. Stefndi alltaf á sjóinn „Það kom aldrei annað til greina en fara á sjó og í Stýri- mannaskólann,“ segir Angantýr Arnar sem lauk því námi tvítugur árið 1977 og varð þá um sumarið 2. stýrimaður á togaranum Dalborgu á Dalvík. Hann var síðan um tíma á bátum á Hauganesi, þá á togaranum Súlnafelli í Hrísey og þaðan fór hann á togarann Baldur á Dalvík þar til hann byrjaði 1. maí 1993 sem afleysingaskipstjóri hjá Vigfúsi Reykjalín Jóhannessyni á Björgvin EA. Vigfús hætti síðan árið 2001 og frá þeim tíma voru þeir Sigtryggur saman með skipið. Af Björgvin lá svo leiðin yfir á Kaldbaksskipin tvö. Þakklátur Jóni á Gullberginu Sigtryggur segist hafa byrjað 14 ára gamall á sjó. „Fyrst var ég á Hannesi Hafstein og sumarið sem ég varð 15 ára lenti ég í slysi um borð og missti fingur á vinstri hendi. Þegar ég var svo búinn með skyldunám og var að jafna mig eftir slysið vann ég í netagerð heima á Seyðisfirði og þá kom Jón Pálsson skipstjóri á Gullbergi til mín og gaf sig ekkert með það að nú skyldi ég koma aftur á sjóinn. Honum á ég mikið að þakka að hafa fengið að prófa sjómennskuna aftur eftir slysið,“ segir Sigtryggur. Af Gullberginu fór Sigtryggur í Stýrimannaskólann og útskrifaðist árið 1980. Eftir að hafa stoppað stutt fyrir aust- an réði hann sig sem háseta og til að leysa 2. stýrimann af á togaranum Harðbak hjá ÚA, því næst lá leiðin í fjögur ár á togarann Skafta hjá Fiskiðjunni Skagfirðingi og þessu næst fór hann á Oddeyrina EA sem var í eigu Samherja. Sigtrygg- ur varð síðan skipstjóri á því skipi og eftir það var hann með hin ýmsu skip hjá fyrirtækinu í skemmri eða lengri tíma; Margréti, Víði, Akureyrina og loks Björgvin. Í upphafi átti hann reyndar bara að fara einn frystingartúr á Björg- vin í Barentshaf en sá túr varð að 11 árum! Síðasti kaflinn í brúnni var svo helgaður Kaldbaksskipunum tveimur. Uppaldir við sjávarsíðuna  Þann 31. maí árið 2000 kom Margrét EA-710 til hafnar með verðmætasta farm sem skipið hafði aflað í einni veiðiferð frá því að það hóf veiðar undir merkjum Samherja. Aflinn upp úr sjó var um 500 tonn af grálúðu og aflaverðmæti 112 milljónir króna. Aðaleigendur Samherja, þeir Þorsteinn Már Baldvinsson og Kristján Vilhelmsson, fóru um borð í Margrétina út af Hjalteyri, skáluðu við áhöfnina af þessu tilefni og sigldu með skipinu til hafnar á Akureyri. Sigr- tryggur var skipstjóri í túrnum og er fyrir miðri mynd. Gloríu flottroll Hampiðjunnar voru þróuð í nánu samstarfi við íslenskar útgerðir, skipstjórnarmenn og sjómenn. Á síðustu 34 árum hefur Hampiðjan framleitt og selt yfir þúsund Gloríur til útgerða í 28 löndum. sem bylti flottrollsveiðum – veiðarfæri eru okkar fag GLORÍAN

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.