Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.04.2023, Qupperneq 32

Ægir - 01.04.2023, Qupperneq 32
32 Ein af Dísunum við Djúpið Bryndís ÍS var einn þeirra eikarbáta sem Bárður G. Tómassson, skipasmið- ur á Ísafirði, hannaði og smíðaði í lok fjórða áratugar síðustu aldar, rétt um það bil sem heimsstyrjöldin síðari var að hefjast. Báturinn var smíðaður fyrir Útgerðarfélagið Njörð á Ísafirði sem var eitt af stærstu útgerðarfyrir- tækjum staðarins en félagið var í meirihlutaeigu Kaupfélags Ísfirðinga. Má til gamans geta þess að fyrsti stjórnarformaður Njarðar var Guð- mundur G. Hagalín, rithöfundur. Dísirnar við Djúpið Dísirnar voru þessir bátar Njarðar kall- aðir einu nafni en fyrst í röðinni var Sædís ÍS, byggð árið 1938. Síðan kom Ás- dís sama ár og svo Bryndís ÍS, Hjördís ÍS og Valdís ÍS á næstu tveimur árum en Bryndís ÍS var sjósett í desember 1939. Sjötta Dísin bættist svo við nokkrum ár- um síðar og fékk nafnið Jódís ÍS. Allar voru Dísirnar gerðar út meðan á styrj- aldarárunum stóð og stunduðu þær línu-, dragnóta- og reknetaveiðar. Þrír þessara báta mættu örlögum sín- um og var fargað á einn eða annan hátt, líkt og er saga fjöldamargra trébáta sem báru uppi fiskveiðar landsmanna á fyrri hluta síðustu aldar. Tveimur bátanna Sædísi og Bryndís hefur hins vegar tek- ist að bjarga frá eyðingu en sá fyrnefndi er nú í umsjá Byggðasafns Vestfjarða. Löng útgerðarsaga Stundaðar voru veiðar á Bryndísi ÍS allt fram undir síðustu aldamót þegar bátn- um var lagt eftir áratuga farsæla útgerð. Flest benti til að Bryndísar biður þau sömu örlög og margra annarra trébáta að verða eytt en bátaáhugamaðurinn Hörður G. Jóhannsson á Akureyri kom í veg fyrir að svo færi. Aflinn á öllum þessum áratugum sem Bryndís ÍS var gerð út er mikill en bátur- inn er líka samofinn útgerðarsögunni fyrir vestan því hinn nafntogaði afla- skipstjóri, Ásgeir Guðbjartsson á Ísafirði, eigandi og stofnandi útgerðarfélagsins Hrannar á Ísafirði, þreytti frumraun sína sem skipstjóri á Bryndísi ÍS. Og ekki bara það því Bryndís ÍS var fyrirmynd fyrstu Guðbjargarinnar sem smíðuð var fyrir útgerðarfélagið Hrönn árið 1956 em það var meira en tvöfalt stærra skip, 47 tonn. Þannig má á vissan hátt segja að Bryndís ÍS hafi lagt grunninn ísfirsku Guggunum og útgerðarstórveldi Ásgeirs Guðbjartssonar. En það er framtíðin sem ekki minna máli skiptri núna og er óhætt að segja að Bryndísar bíði að ganga al- gjörlega í endurnýjun lífdaga og takast á ný við öldur hafsins þegar verkefni Harðar G. Jóhannssonar og fjölskyldu hans lýkur. Fyrsti skipaverkfræðingur Íslendinga Áðurnefndur hönnuður Bryndísar og hinna Dísanna, Bárður G. Tómasson, skipasmiður er merkur maður í trébáta- sögu landsmanna. Hann fæddist að Hjöll- um í Skötufirði í Norður-Ísafjarðarsýslu árið 1885 og fluttist barn að aldri með móður sinni að Kollafjarðarnesi í Strandasýslu. Þar ólst hann upp hjá móðurbróður sínum, Guðmundi Bárðar- syni sem var frábæt bátamaður, að því er heimildir segja. Þarna hófust kynni Bárðar af trébátum og bátasmíði. Bárður fluttist 18 ára gamall til Ísafjarðar þar sem hann réð sig til Jóhanns Þorkelsson- ar skipasmiðs og var hjá honum í einn vetur við þilskipaviðgerðir. Þá hélt hann til Danmerkur til náms í skipasmíðum og fór síðan til Bretlands til framhaldsnáms og starfa í greininni. Bárður lauk námi í skipaverkfræði fyrstur Íslendinga en ár- ið 1916 sneri hann aftur til Ísafjarðar og stóð fyrir stofnun skipasmíðastöðvar þar í bæ. Hana rak Bárður allt til ársins 1944 þegar hann var ráðinn í embætti siglingamálastjóra. Sem slíkur gaf hann m.a. út viðamikla reglugerð um smíði trébáta og hún er einmitt leiðarljós Harðar og Lilju Dísar í endurbygging- unni á Bryndísi ÍS. Þannig má á vissan hátt segja að Bárður, hönnuður og smið- ur bátsins á sínum tíma, sé líka í lykil- hlutverki í að Bryndís verður endur- byggð eftir öllum kúnstarinnar reglum.  Bryndís ÍS-69 að veiðum í Djúpinu.

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.