Gripla - 2023, Blaðsíða 37
S I Ð R , RELIGION AND MORALITY 35
Á G R I P
Siðr, trú og siðferði
Efnisorð: siðferði, norræn trú, kveðskapur, siðr, Íslendingabók, siðskipti,
kristnitaka
Fræðimenn hafa á síðustu fimmtán árum mikið rýnt í trúarlega merkingarfræði
fornnorræna orðsins siðr, en siðferðileg vídd þess hefur nánast ekki hlotið neina
umfjöllun. Mögulega stafar það af því að fræðimenn hafa almennt ekki beint athygli
sinni að siðferði þeirra sem dýrkuðu norræna guði, nema í tengslum við heiður
eða karlmennsku. Markmið mitt er að takast á við þetta og meta hvort siðferðileg
merkingarfræði orðsins siðr hafi þróast með kristnitöku eða verið til áður.
Í greininni eru greind merkingarsvið elstu dæma um orðið siðr, og þau tengd
við trúarbrögð, einstaklinga eða siðferði. Síðastnefnda merkingin kemur fyrst
glögglega fyrir í kvæðinu Harmsól á tólftu öld, þó að siðferðisvíddir komi upp
fyrr. Á grundvelli þessara siðferðisvídda, landfræðilegrar útbreiðslu hugtaksins
og orðsifjafræði, legg ég til að siðr í merkingunni „siðferði“ hafi verið viðtekið og
jafnvel vinsælt á víkingaöld.
Greininni lýkur með því að skoða samband siðferðis og trúar í samhengi við
orðið siðr og lagabreytingar. Vera má að kristinn siðr hafi mótast seint á víkingaöld
en siðr tengdur norrænum guðum kann að hafa verið minna sveigjanlegur en
stundum er gert ráð fyrir, í ljósi þess hve stórt hlutverk trúarhugmyndir léku
í daglegu lífi fólks til viðbótar við áhrif þeirra í lagalegu og stjórnsýslulegu
samhengi. Ef til vill merkti hugtakið siðr ekki „siðferði“ í fornnorrænu á sama
hátt og moral í huga þeirra sem tala nútímaensku (eða siðferði í nútímaíslensku),
og sönnunargögnin gætu verið of ósamfelld til að styðja við tilgátuna um almenna
notkun hugtaksins fyrir siðareglur. Þrátt fyrir það er siðr það varðveitta orð sem
einna helst fangar nútímahugtakið siðferði.
S U M M A R Y
Siðr, Religion and Morality
Keywords: Morality, Old Norse religion, skaldic poetry, siðr, Íslendingabók,
conversion, Christianization
The religious semantics of Old Norse siðr have been heavily scrutinized by
scholars over the last fifteen years, yet its moral dimensions have almost not been
considered at all. In this, research on siðr may reflect the lack of attention paid in
general to the morality of worshippers of Old Norse gods, beyond considerations
of honour and masculinity. With this article, I aim to fill this gap in scholarship
and to assess whether siðr’s moral semantics developed with the Christianization
of the North or pre-existed it.