Úrval - 01.09.1968, Side 108
106
ÚRVAL
uðsmanni, sem var mikill flugkappi
og einn bezti maður, sem ég hef
þekkt. Síðar átti það fyrir honum
að liggja að skrifa bókina „Upp-
reisnin á Bounty“ í samvinnu við
Charles Nordhoff.
Við hófum okkur til flugs, og eftir
svolitla viðureign yfir St. Mihiel,
eins konar æfingu undir það, sem á
eftir fór, stefndi Hall í áttina til
Pont-á-Mousson. Ég elti hann. í
áttina frá víglínu Þjóðverja kom
ein flugvél fljúgandi. Þetta var ný
Pfalz-flugvél. Hall var sífellt að
hækka flugið, og ég var rétt á eftir
honum, en Þjóðverjinn hafði ekki
komið auga á okkur ennþá. Brátt
vorum við komnir þúsund fetum
upp fyrir hann, og við vorum tveir
á móti einum. Eina von hans
um undankomu var að láta flug-
vélina taka snögga dýfu. Pfalzflug-
vélarnar voru sterklega byggðar, og
Nieuportflugvélarnar hefði ekki haft
roð við henni í slíkri dýfu, því að
helzti gallinn við þær var sá, að
klæðningunni á efri vængnum hætti
til þess að rifna af í dýfu. Hefði ég
verið þessi þýzki flugmaður og séð
tvær Nieuportflugvélar koma í átt-
ina til mín, hefði ég stefnt beint
niður á við og heim til flugstöðvar
minnar. Ég ákvað að fljúga fyrir
Þjóðverjann, svo að hann kæmist
ekki undan. Ég vissi, að Hall mundi
ráðast á hann, þegar hann væri til-
búinn til slíks.
Þjóðverjinn sá mig, þegar ég kom
út úr sólarflóðinu í þeim tilgangi
að fljúga í veg fyrir hann. Hann
stefndi flugvélinni upp á við og fór
að hækka flugið. Jimmy komst nú
í skotfæri og lét kúlnahríðina dynja
á honum. Þjóðverjinn breytti um
stefnu, stefndi nú niður á við og
ætlaði að láta flugvélina stinga sér.
Þetta voru einmitt þau viðbrögð af
hans hálfu, sem ég var að bíða
eftir. Ég var kominn aftur undan
honum á næsta augnabliki. Ég mið-
aði byssunum á bakið á flugmanns-
sætinu í gegnum byssusjónaukann
og ýtti á báða gikkina.
Fjórða hver kúla var eldkúla, og
ég gat nú séð tvær eldrákir skella
á afturhluta Pfalzflugvélarinnar.
Ég hélt gikkunum niðri, ýtti stýris-
stönginni svolítið aftur á bak og
beindi flugvélinni aðeins upp á við.
Það var eins og ég væri að lyfta
garðslöngu. Kúlnastraumurinn
þrammaði eftir skrokk Pfalzflug-
vélarinnar í áttina að flugmanns-
sætinu og svo beint í það. Flugvél-
in tók nú stóra sveigju. Henni var
ekki lengur stýrt. Ég lauk dýfunni
og rétti flugvélina af og horfði á
óvinaflugvélina hrapa og skella svo
til jarðar. Ég hafði skotið niður
mína fyrstu óvinaflugvél.
„MEISTARI MEISTARANNA".
Þetta var 29. apríl. Ég náði fjór-
um í viðbót í maí. Frakkar sæmdu
mig Stríðskrossinum (Croix de
guerre). En þá hindruðu eyrna-
kvillar mig í að halda áfram flugi
um sinn, og ég varð að halda kyrru
fyrir mikinn hluta júní, júlí og
ágúst. Því gat ég ekki státað af
neinum sigrum þá mánuðina. Að
lokum varð ég að gangast undir
uppskurð.
Ég stóð í miklum bréfaskriftum,
meðan ég var í sjúkrahúsinu. Þeg-
ar ég lauk við bréf eitt til vinar