Úrval - 01.10.1968, Síða 25
Andlitsböð, hárgreiðsla, andlitssnyrting, nudd, handsnyrting,
jótsnyrting, vaxböð, gujuböð, þangböð og leðjuböð,
siliconesprautur, andlitsuppskurðir, þetta er liinn skringilegi og
dapurlegri, en samt að vissu leyti töjrandi eltingaleikur
við jegurðina.
Fegurð
r
1
tonnatali
gcZm,,Vilji hún verða fögur,
verður hún að vinna að
því,“ segja fegrunarein-
ræðisherrarnir í tízku-
blöðunum. Og það
vantar víst ekki, að konurnar rói
að því öllum árum að verða fagr-
ar í fullvissu þess, að iðki þær alla
helgisiðina, athugi tízkuna gaum-
gæfilega, fórni og eyði tíma og pen-
ingum, þá gæti þeim tekizt að end-
urbæta það, sem Móðir Náttúra
veitti þeim. Andlitsböð, hárgreiðsla,
andlitssnyrting, nudd, handsnyrt-
ing, fótsnyrting, vaxböð, gufuböð,
þangböð og leðjuböð, silicone-
sprautur, andlitsuppskurðir, þetta
er hinn skringilegi og dapurlegi, en
samt að vissu leyti töfrandi elting-
arleikur við fegurðina.
Sheila King, innkaupafulltrúi hjá
stórverzluninni Bendel í New York,
hefur þetta að segja um starfssvið
þetta: „Það mætti kalla þetta eins
konar tunglskinsgeislaviðskipti.“
,,Fegrunarviðskiptin“ í Bandaríkj-
unum nema líka 7 billjónum, miðað
við áætlaða eyðslu í þessu skyni
árið 1967. Upphæð þessi skiptist
jafnt milli snyrtistofa og framleið-
enda ýmissa snyrti- og fegrunar-
vara. Viðskiptin vaxa stöðugt um
10% á ári, og þau eru næstum
ónæm fyrir samdrætti í efnahags-
Newsweek
23