Úrval - 01.10.1968, Blaðsíða 80
78
1968. Fjöldi fólks gaf ýmsar upp-
lýsingar um hann.
Hann þótti feiminn og gat sjald-
an litið beint í augu fólks, og stund-
um stamaði hann. Hann virtist ekki
hafa neitt sérstakt fyrir stafni, en
skorti þó aldrei fé.
Eftir því sem lögreglunni bárust
fleiri upplýsingar, varð myndin af
morðingjanum skýrari. Hann drakk
mikið og var tíður gestur á börum
og vínveitingahúsum. Klæðnaður,
fas og tal, er oft var málfræðilega
rangt, benti til lélegrar menntun-
ar, og ekki þótti ósennilegt, að hann
væri ef til vill ættaður úr Mið-
Vesturríkjunum. Einnig virtist hann
ekki vera sérmenntaður á neinu
sérstöku sviði. Það benti til, að
hann væri kannski atvinnuglæpa-
maður. Ekki var hann gáfaður, en
hraðlyginn.
Um miðjan apríl hafði FBI feng-
ið miklar upplýsingar um mann-
inn, en enn var ekki vitað, hver
hann var, og ýmsar nánari upplýs-
ingar leiddu ekkert sérstakt í ljós.
Tónskáld nokkurt, er verið hafði
samferða Eric Galt frá Los Angel-
es, sagði, að hann hefði notað sím-
ann mjög oft.
Einnig kom í ljós, að Galt hafði
búið í Montreal sumarið 1967 og
þóttist vinna við Heimssýninguna,
Expo 1967. Það reyndist ekki rétt.
Mexikanska lögreglan staðfesti,
að hann hefði komið til Puerto
Vallarta síðastliðinn október. Og
vændiskona ein, sem þekkti Galt,
sagði, að hann hefði sagt við sig:
„Þegar ég er dottinn í lukkupott-
inn, ætla ég að dvelja hér og lifa
eingöngu á bjór og baunum.“ Þrátt
ÚRVAL
fyrir þessar upplýsingar, var FBI
litlu nær.
Af tilviljun fundu tveir lögreglu-
menn bréf til Eric S. Galt í veit-
ingahúsi í Atlanta, skammt frá þeim
stað, þar sem hvíti Mustang bíllinn
var skilinn eftir.
Lögregluvörður var strax settur
um veitingahúsið, ef svo vildi til,
að Galt væri þar. Þetta fór fram
með mikilli leynd, því að FBI vildi
ná honum lifandi. Þegar lögreglu-
mennirnir höfðu beðið árangurs-
laust fyrir utan húsið í tvo sólar-
hringa, réðust þeir til inngöngu. En
Galt var þar ekki.
Hann hafði hins vegar leigt þar
herbergi, og skilið eftir nokkrar
bækur og landabréf. Eitt þeirrá var
götukort af Atlanta. Höfðu svartir
hringir verið dregnir utan um heim-
ili dr. Kings, og nokkra fleiri staði
á kortinu. Á öðru korti fannst eitt
greinilegt fingrafar, það skýrasta,
sem FBI hafð náð af honum.
En þetta eina fingrafar leysti
samt ekki allan vandann. Á skrám
FBI voru fingraför 82 milljóna
manna. Mjög fljótlegt er að finna
af hverjum fingraförin eru, ef þau
eru öll til staðar. En þegar um að-
eins eitt er að ræða, verður að bera
það saman við öll tíu fingraförin á
hverju korti eða 820 milljón fingra-
fara alls.
Einhvern veginn varð að komast
hjá því að þurfa að athuga öll kort-
in. Ýmislegt benti til„ að morðing-
inn væri ekki aðeins glæpamaður,
heldur einnig strokufangi. Þeir
reyndust 13.000. Þetta fannst lög-
reglumönnunum full mikið, svo að
þeir ákváðu að takmarka leitina