Úrval - 01.10.1968, Blaðsíða 75
DÁNARORSÖK: KRABBAMEIN
73
aðferð er fólgin í því að burt eru
tekin æxli í sogæðum og viðhafðar
geislalækningar á eftir.
® Krabbamein í leghálsi, sem
áður var álitið ólæknandi, læknast
nú alltaf ef komið er nógu snemma.
Auðvelt er að finna meinið með ein-
faldri aðferð sársaukalaust, og ætti
engin kona, sem boðuð er í fjölda-
rannsókn, að láta hjá líða að gegna
kallinu.
• Sama gildir um aðrar tegund-
ir krabbameins í getnaðarfærum
kvenna.
• Brjóstakrabbi veldur fleiri
konum dauða en nokkur önnur teg-
und krabbameins, en nú birtir einn-
ig yfir þessu jafnt sem öðru og
sízt minna. Af sjúklingum í Me-
morial-spítala í New York sem
gengust undir skurðlækningu á ár-
unum 1916—1926, lifðu 40,6% í
fimm ár á eftir án þess nokkurt út-
lit væri fyrir að sjúkdómurinn tæki
sig upp. Árið 1940 var talan komin
upp í 54,4% og 1949 upp í 65,4%.
Með nýjum aðferðum, svo sem
röntgenmyndum af mjólkurgöngun-
um, má lækna miklu fleiri konur
af þessu. Brjóstakrabbi, sem ekki
er farinn að sá sér, læknast nú oft-
ast sé beitt réttum aðferðum, eða
í 80% tilfellum.
• Krabbamein í ristli og enda-
þarmi, en þetta eru hinar algeng-
ustu tegundir innvortis krabba-
meins, vex hægt. Meinið þarf 1155
daga til að stækka um helming.
Með því að gera rannsókn á hverju
ári finnst þessi meinsemd svo
snemma, að lækning er vís í 90%.
Til rannsóknar hefur læknirinn
þarmspegil, en það er pípa með
spegli á endanum, og fylgir spegl-
inum ljósapera, til lýsingar. Með
þessu tæki er auðvelt að sjá hverja
minnstu breytingu, sem ískyggilega
má telja.
• Jafnvel lungnakrabbi, sem
flestir álíta ólæknandi, lætur stund-
um undan læknisráðum nútímans.
Dr. Leo Rigler sem starfar við
læknisfræðideild háskólans í Los
Angeles í Kaliforníu, segist vita um
85 sjúklinga, sem höfðu krabbamein
í lunga sem orðið var allt að því
20 mm. Þeir gengust allir undir
skurðaðgerð, og af þeim lifðu 55%
þau fimm ár, sem talin eru skera
úr um það hvort sjúkdómurinn er
læknaður. En af 178 sjúklingum,
sem höfðu stærri meinsemd í lunga,
eða frá 25 mm til 40 mm, læknuð-
ust 20%, að því er séð verður.
„Þessar tölur sýna og sanna,“
segir dr. Rigler, „hve óþörf hún er
þessi takmarkalausa svartsýni. Það
er ekkert hægara en að finna æxli,
þó það sé ekki nema 20 mm að
þvermáli. Við höfum jafnvel getað
greint æxlismyndun, sem ekki var
orðin nema 10 mm.“ Það er mest
þörf fyrir reykingamenn að láta
gegnlýsa sig með jöfnu millibili, og
að röntgenmyndirnar séu sem
gaumgæfilegast skoðaðar, svo unnt
sé að finna meinið þegar í byrjun.
Ótal krabbameinssjúklingar hafa
fengið fullan bata. Hér skal sagt frá
þremur dæmum sem sýna það ljós-
lega:
William Powell, frægur kvik-
myndaleikari, gekkst undir skurð-
aðgerð vegna krabbameins í enda-
þarmi. Eftir það gat hann tekið upp