Úrval - 01.10.1968, Blaðsíða 129
LIFANDI DAUÐI TIL SÖLU
127
óku yfir brúna og inn í Queens-
hverfið úti á Löngueyju. Þar beygði
Simcabifreiðin inn í hliðargötu í
íbúðarhverfi. Þetta var einstefnu-
akstursgata, og stóðu bifreiðar í
röðum beggja vegna götunnar.
Nú hægði Levonian ferðina, með-
an íélagi hans ók greitt eftir göt-
unni, beygði fyrir hornið og hvarf.
Levonian var nú reiðubúinn að
loka götunni með bifreið, sinni líkt
og af tilviljun, ef ske kynni, að
þeim hefði verið veitt eftirför í
annarri bifreið. Þannig hefði hann
getað komið í veg fyrir, að hægt
hefði verið að veita félaga hans
eftirför, meðan hann ók síðustu
götulengdirnar að húsinu, sem hann
hafði tekið á leigu íbúð í. En það
hafði enginn veitt þeim eftirför.
Litla Simcabifreiðin stanzaði í
einkabílskúr, sem Trigano hafði
tekið á leigu. Þegar Levonian kom
nokkrum mínútum síðar, starði
hann á Simcabifreiðina í þögulli
aðdáun. Svo tók hann til óspilltra
málanna með skrúfjárn að vopni.
Að þrem mínútum liðnum hafði
honum tekizt að opna málmsuðu-
samskeytin á hylkinu, sem hann
hafði soðið saman í Marseille. Inni
í hylkinu voru 50 glærir plastpok-
ar, sem hafði hver um sig að geyma
hálft kíló af hvítu kristalskenndu
dufti. Þeir settu plastpokana í tvær
ferðatöskur, læstu bílskúrnum og
gengu niður eftir götunni í áttina
að húsinu, sem íbúð Triganos var
í. Það var bjart, og þeir fóru ekki
með neinni leynd, þótt þeir bæru
kvartmillión dollara virði af her-
oini í töskum sínum.
Geymslustaður heroinsins er ekki
síður mikilvægur en kuup þess og
sala. Það er mjög mikilvægt að
velja réttan geymslustað. Birgðirn-
ar verða að geymast á leynistað,
sem auðvelt er að komast að, en
er jafnframt öruggur fyrir bæði
lögreglu og þjófum. Eiturlyfj aneyt-
andinn, sem mælir birgðir sínar í
broti úr skeið, hefur alls konar
leynistaði um að velja, vatnskass-
ann í vatnssalerninu, jakkafóður,
húsgögn, sem holuð hafa verið inn-
an. Götusalar, sem ganga aðeins
með nokkra tugi gramma á sér,
eiga erfiðara um vik. En hvað
„toppmennina“ snertir, heildsala,
miðlara og seljendur, sem verzla
með eiturlyf í kílótali, verður val
slíkra geymslustaða að sannköll-
uðum þolraunum í rökvísi og ráð-
kænsku.
Trigano hafði leyst þetta vanda-
mál af alveg sérstakri snilli. Vik-
um saman hafði hann leitað að
íbúð í úthverfunum, og að lokum
hafði hann valið þriggja hæða hús
í Kewgörðum. Þetta var miðstétt-
arhverfi, þar sem lítið var um af-
brot. Fyrir 125 dollara mánaðar-
leigu hafði hann tekið á leigu dag-
stofu, borðkrók, tvö svefnherbergi
og lítið eldhús.
En það var skápurinn í anddyr-
inu, sem reið baggamuninn og
gerði þetta að mjög hentugri íbúð
fyrir þá félagana. Af einhverjum
ástæðum hafði skápnum verið
hrófað upp, svo að í honum var
útskot, sem náði yfir efsta þriðjung
hans hægra megin. Útskot þetta
var 2 fet á hæð, 2 fet á breidd og
3 fet á dýpt.
Trigano hafði lagt skápinn sedr-