Úrval - 01.10.1968, Blaðsíða 81
LEITIN MIKLA
79
við karlmenn á aldrinum 21 til 50
ára, er sloppið höíðu úr fangelsum.
Þeir reyndust tæplega 2000. Hófst
nú mjög ýtarlegur samanburður á
fingrafaraspjöldunum og fingrafar-
inu, er fannst á landabréfinu í At-
lanta.
Þann 19. apríl fannst spjald með
fingrafari, er líktist því, sem var á
landabréfinu. Það var af James
Earl Ray. Hann var fæddur 10.
marz 1928 í Alton, Illinois og greini-
lega mikill hrakfallabálkur.
Skýrslur um Ray sýndu, að hann
hafði gerzt sekur um marga glæpi,
allt frá ýmiss konar fölsunum til
vopnaðra rána og oft setið í fang-
elsi fyrir vikið. Hann hafði strokið
úr fangelsi fyrir tæplega ári. Fimm
hundruð lögreglumenn voru þegar
sendir til Mið-Vesturríkjanna til að
afla allra fáanlegra upplýsinga um
Ray. Þeir ræddu við föður hans,
bræður og systur, kennara og skóla-
systkini, fangelsisstjóra og sam-
fanga og yfirleitt alla þá, er ein-
hverjar upplýsingar gátu gefið um
hann.
James Earl Ray ólst upp í mik-
illi fátækt og þvældist með foreldr-
um sínum og systkinum um ýmsar
borgir meðfram Mississippi fljótinu.
Oft skipti hann um skóla. Vinalaus
og vanræktur varð hann með tím-
anum að bófa og ræningja. Fjöl-
skyldan leystist sundur, þegar hann
var unglingur og börnin fóru hvert
í sína áttina.
Fimmtán ára gamall hætti Ray
skólanámi og gekk í herinn 1946.
Hann var í Þýzkalandi í tvö og
hálft ár. Þar var hann dæmdur í
þriggja mánaða betrunarhúsvinnu,
vegna drykkjuskapar og brota á
herlögunum. Að lokum var hann
rekinn úr hernum. Stuttu seinna
fékk hann starf í verksmiðju einni
í Illinois, en missti það fljótlega.
Þá gerðist hann glæpamaður, en
þar var hann einnig sami hrakfalla-
bálkurinn.
Hann fór nú til Los Angeles og
reyndi að stela þar ritvél. Ekki
tókst betur til en svo, að hann týndi
bankabókinni sinni á leiðinni og
náðist því strax. Skömmu síðar
reyndi hann að ræna matvöruverzl-
un í Illinois, en á flóttanum féll
hann út úr bílnum, sem hann var
í, þegar hann tók krappa beygju —
og náðist. Er hann reyndi að fremja
rán í Chicago, komst hann í sjálf-
heldu og varð fyrir skoti. Eitt sinn,
þegar lögreglan var á hælunum á
honum í St. Louis, stökk hann inn
í lyftu, en gleymdi að loka dyrun-
um og var dreginn út. Tvisvar náð-
ist hann, er hann reyndi að flýja
úr Ríkisfangelsinu í Missouri, þar
sem hann afplánaði 20 ára fangels-
isvist, vegna vopnaðs ráns. Loks
tókst honum að sleppa þaðan 23.
apríl 1967 með því að fela sig inni
í brauðbíl.
Leitin hélt stöðugt áfram, og gæt-
ur voru hafðar á börum, veitinga-
húsum, strætisvagnastöðvum, sam-
komustöðvum alls konar flökku-
lýðs, járnbrautarstöðvum um öll
Bandaríkin og einnig á ættingjum
Rays. Þetta var ein mesta lögreglu-
aðgerð í sögu Bandaríkjanna, sem
um getur. En Ray var hvergi sjá-
anlegur. Þótti því líklegt, að hann
hefði komizt úr landi. En hvert?
FBI fannst sennilegt, að hann