Úrval - 01.10.1968, Side 53
Afganistan
— land töfra
og leyndardóma
Það eru aðeins tveir staðir eftir í heiminum,
sem enn eru hjúpaðir hulu raunverulegra leyndar-
dóma og dulúðar. Annar er Tíhet, en þangað
er ekki hægt að komast, liinn er Afganistan.
Það er engu landi líkt.“
Eftir BEN LUCIEN BURMAN
a„Það eru aðeins tveir
staðir eftir í heimin-
um, sem enn eru hjúp-
aðir hulu raunveru-
legra leyndardóma og
dulúðar", sagði svartskeggjaði
maðurinn, sem sat næst fyrir aft-
an. mig í flugvélinni. „Annar er
Tíbet, en þangað er ekki hægt að
komast, hinn er Afganistan. Það
er engu landi líkt“.
Flugvélin var á vesturleið frá
Nýju-Delhi, og fyrir neðan okkur
sáust indversku sveitaþorpin dreifð
um þurra hásléttuna. Allt í einu
sáum við geysimikið og snæviþak-
ið fjallabelti koma í ljós. Þetta var
hluti Hindu Kush fjallgarðsins,
öðru nafni Hindua-morðingjarnir.
Nafngiftin á rætur að rekja tii
þeirrar skoðunar, að enginn Ind-
verji komist lifandi yfir fjöllin.
Handan þeirra er Afghanistan.
Flugvélin hækkaði sig upp í
18.000 feta hæð til að komast í
gegnum fjallaskörðin. Miklir mis-
vindar voru þarna og hún hristist
og stakkst, ógurlega. Óralengi flug-
um við milli fjallanna, en samt
virtust tindarnir sífellt stækka og
verða eyðilegri. Líkast var sem við
værum á einhverju eilífðarferða-
lagi um fjalllendi tunglsins. En
skyndilega kom grösugur dalur í
Ijós á milli gnæfandi tindanna, og
í fjarska sáum við glitta í borg,
þar sem bæði voru nýtízku bygg-
ingar og hús með moldar- og stein-
Readers Digest
51