Úrval - 01.10.1968, Síða 55
AFGANISTAN
53
Myndin er frá Kabul, höfuöborg Afganistan, í baksí/n sést Hindu Kush
fjallgaröurinn.
sveit. Eins og þú sást áðan, henda
hjarðmennirnir steinum að kindun-
um og geitunum til að beina þeim
rétta leið. Þessi lgregluþjónn gerði
þetta einnig. Við hlið sér hafði
hann hrúgu af steinum, og ef bíl-
stjórarnir óku ekki þá leið, sem
hann benti þeim, henti hann bara
grjóti gegnum bílrúðuna til að fá
þá til að hlýða sér.“
Mér til mikillar furðu sá ég fram
undan kaffistofu, eins og heima í
Bandaríkjunum, með glampandi
neonljósum. „Þú átt eftir að kom-
ast að raun um, að Afganistan er
land ótrúlegra andstæðna", sagði
prófessorinn. „En fyrir því eru viss-
ar ástæður. Um það leyti, sem
Kristur lifði og nokkrar næstu ald-
irnar þar á eftir, var Afganistan
ein af meiri háttar menningarmið-
stöðvum heimsins. Hér voru stór-
ar borgir með yfir eina milljón
íbúa og fræg mennta- og trúar-
setur. Allir, sem ferðuðust frá
Evrópu til Kína eða Indlands fóru
um Afganistan. Og á tímum Marco
Polos á þrettándu öldinni, var leið-
in hér um mjög fjölfarin.
Þegar Portúgalar fundu sjóleið-
ina til Indlands, hófst hnignun Af-
ganistan. Nú erum við loksins að
komast til lífsins aftur og reynum
að gera á sex eða sjö árum, það
sem ekki tókst á mörgum öldum“.
Við ókum fram hjá mosku með