Úrval - 01.10.1968, Síða 60
Hún snarstanzaði á þröskuldinum, ag það var sem rajstraumur
hríslaðist um hana. Var þetta mögulegt? hugsaði hún. Gat
slílcur karlmaður verið raunverulegur? Eða var þessi
ótrúlega mannvera kannske svipur, þeéisi dýrlega
vera, sem liallaði sér letilega aftur á bak í legu-
bekknum, umkringdur frá sér numdum
konum.
Byron lávarður
og
Guiccioli greifaynja
Eftir R. STERN
Teresa var þreytt. Hún
hafði ekki óskað eftir að
fara í þessa veizlu Ben-
zoni greifynju. Hún
hafði aðeins samþykkt
það til þess að þóknast hinum aldna
greifa, manni sínum. Og nú hafði
gamli maðurinn reikað eitthvað
burt frá henni og fannst hvergi.
„O, þetta er svo sem líkt honum,“
hugsaði hún gröm í bragði.
Hún reikaði letilega úr einni stof-
unni í aðra, en mannþröngin og
blaðrið í fólkinu olli henni aðeins
leiðindum.
Svo snarstanzaði hún á þröskuld-
inum, og það var sem rafstraumur
hríslaðist um hana. Var þetta mögu-
legt? hugsaði hún. Gat slíkur karl-
maður verið raunverulegur? Eða
var þessi ótrúlega mannvera kann-
ske svipur, þessi dýrlega vera, sem
hallaði sér letilega aftur á bak í
legubekknum, umkringdur frá sér
numdum konum? ■ Nei, dauðlegur
maður gat ekki verið svona fagur,
þetta gulbrúna, lífmikla hár, þessi
blágráu augu, þetta tignarlega höf-
uð, sem hafði á sér ljónssvip. ...
Hún stóð þarna í dyrunum og starði
í leiðslu á hann.
58
Love affairs that have made history