Úrval - 01.10.1968, Síða 99
„Allan sólarhringbm, á hverri mínutu dags og nœtur, sprautar
einhver í Bandaríkjunum heroini inn í blóðrásarlcerfi sitt,“ skrifar
Alvin Moscow. En þið munuð samt ekki mœta eiturlyfjaneyt-
anda í þessari sögu, enda er angist og hryllingur þess heims, sem
eiturlyfjaneytandinn hrærist í, mönnum þegar vel kunnur.
Þessi bók er fyrsta fullkomlega ábyrga frásögnin af mönnunum,
sem fullnœgja þörfum eiturlyfjaneytandans, kaupmöngurunum,
sem ráða yfir mestu gróðauppsprettunni í heimi lúnnar skipulögðu
glæpastarfsemi. Til þess að höfundinum reyndist unnt að birta
fullkomlega áreiðanlega frásögn af starfsemi þessari, eyddi liann
fjórum árum í að fylgjast í minnstu smáatriðum með stórri send-
ingu af heroini alla leið frá valmúaekrum í Austurlöndum nær til
fátækrahverfa og úthverfa bandarískra borga. Hann átti viðtol
við starfsmenn lögreglunnar í 7 löndum, ræddi við ópíumbœndur
í Tyrldandi, fylgdist með bandariskiom- rannsóknarlögreglumönn-
um í þjónustu „Deildar eiturlyfja og hættulegra lyfja,“ er þeir
unnu að rannsókn eiturlyfjamáls eins í Harlem, og liafði mjög nána
samvinnu við „Deild eiturlyfja og hættulegra lyfja.“
Arangurinn af öllu þessu starfi er algerlega einstök uppljóstr-
un risavaxins, alþjóðlegs samsæris.
Sumir glœpamennirnir í máli þessu hafa verið dregnir fyrir
dómstólana og dæmdir. Aðrir ganga enn lausir.
Vegna lagalegra talcmarkana hefur nöfnum allra þeirra, er hér
eiga hlut að máli, verið breytt.