Úrval - 01.05.1976, Blaðsíða 23
ÞOLRAUNÁ RAINIERFJALLI
21
Þangað til hafði Sharon trúað því
statt og stöðugt, að þetta mundi allt
enda vel. Nú greip hana kvíði í fyrsta
sinn. Munum við öll komast lífs af?
Hún sagði við pabba sinn: „Pabbi,
leyfðu mér að þræða slóðina með-
fram vegvísunum niður að Paradísar-
gistihúsinu. ”
Faðir hennar samþykkti þetta,
enda þótt honum væri það um geð.
Hann vafði fötin fast að henni og
lyfti henni upp úr gryfjunni. Hún
reis á fætur með erflðismunum,
en skall strax kylliflöt. Hún gat ekki
staðið á fótunum. Stormurinn í
brattri brekkunni var ofjarl hennar.
Davíð reyndi þetta líka, en það fór á
sömu leið. Þau skriðu aftur niður í
gryfjuna, mjög vonsvikin, drógu
dúkinn fyrir og skreiddust í svefn-
pokana að nýju.
,,Þið megið ekki yfírgefa gryfjuna
núna, á hverju sem gengur,” sagði
faðir þeirra veiklulegum rómi.
,,0kkur mun berast hjálp.”
Frú Reddick vaknaði á laugardags-
morgninum við tilbreytingarlausan
nið regnsins, sem skall á húsbílnum
(þeirra. Hún fór að velta því fyrir sér,
fíivort maður hennar og börnin
myndu bíða átekta uppi í fjallshlíð-
inni vegna regnsins, í stað þess að
snúa aftur síðdegis á laugardeginum,
eins og ákveðið hafði verið. Hún ók
að Paradisargistihúsinu skömmu fyrir
hádegi, og spurði þjóðgarðsverðina,
hvort nokkur hefði orðið var við
mann hennar eða börn. En þeir
svöruðu því neitandi.
Klukkan2,15 síðdegis höfðu þjóð-
garðsverðirnir í Muirbækistöðvunum
samband við þjóðgarðsverðina við
Paradísargistihúsið um talstöð, og
voru þeir þá spurðir, hvort þeir hefðu
orðið varir við Reddick og börn hans.
,,Hér er enginn, sem heitir Red-
dick,” svöruðu þeir þá. ,,Þau hljóta
að vera enn á uppleið!” Þeir sögðu,
að það væri 7,7 stiga frost á Celsius í
Muirbækistöðvunum, mikil snjó-
koma og ofsarok. Þeir sögðu, að engir
leitarflokkar gætu athafnað sig við
slíkar aðstæður.
Frú Reddick kom ekki dúr á auga
næstu nótt vegna kvíða. Hún lá og
hlustaði á regnið, sem streymdi
stöðugt niður. Hún gerði sér grein
fyrir því, að ofar í fjallinu var ekki
regn heldur snjókoma. Þar hlóðst
snjórinn sífellt ofan á mann hennar
og börn. Skyldu þau nokkru sinni
fínnast?
Klukkan 5,50 á sunnudagsmorgn-
inum héldu sjálfboðaliðar frá Fjalla-
björgunarsveitinni í Tacoma af stað
frá Paradisargistihúsinu að leita
þeirra þrátt fyrir þétta þoku og mikla
rigningu. Foringi þeirra var Lou
Whittaker. Um tíuleytið hafði storm-
inn lægt dálítið í Muirbækistöðvun-
um. Annar 6 manna leitarflokkur
lagði þá af stað þaðan niður eftir
fíallinu. í honum var Dalle-Molle.
Leitarmennirnir höfðu ekki miklar
upplýsingar eða vísbendingar til þess