Úrval - 01.05.1976, Blaðsíða 90
88
þúsund og fimm hundruð dollara,
eins og þeir voru þá að verðgildi.
Þegar samningarnir vom á loka-
stigi, réði Boone nokkra bestu skóg-
armenn landsins til þess að ryðja leið
inn í Kentucky. 10. mars 1775, rétt
áður en samningurinn var staðfestur,
var hafist handa. Hver vegarruðn-
ingsmanna átti að fá tíu pund og tíu
shillinga (þá um 47 dollara) „fyrir
vinnu við að gera veg inní Kent-
ucky”. Það var nóg til þess að kaupa
meira en 160 hektara í „blágresis-
landinu blíða.” Boone hafði, sem
foringja, verið heitið 800 hekturum.
Markmið þeirra var Otravík rétt við
bugðu á Kentuckyfljóti, rúmlega 200
fjalla- og óbyggða leið. Meðan
dagskíman entist sveifluðu mennirnir
öxum sínum og mældu árangurinn í
metmm, ekki kílómetrum, en skildu
eftir sig auða og færa leið. Þeir náð
Cumberlandhliði heilu og höldnu,
héldu síðan yfir, og fjallsveggirnir
reigðu sig um 330 metra uppi yfir
þeim.
Niður að Cumberlandánni höfðu
vísundarnir þjappað slóðina, en
handan við ána var hæðailandslag
með hnúskóttum trjám og mnnum,
og það var á þessum hæðum, sem
vegagerðarmennirnir gáfu leiðinni
það nafn, sem þeim fannst hæfa:
Óbyggðarvegurinn. En þeir héldu
áfram, felldu tré og fylltu hoiur,
sneru síðan til baka og drógu fallna
trjáboli til þess að brúa ár og læki. En
þessi grófhöggni stígur varð þjóðleið
landnemanna, hæfilega breiður fyrir
ÚRVAL
uxakerm, fmmstæð leið til framtíðar
Ameríku.
Að kvöldi 1. apríl komust þeir
þangað, sem Boone hafði valið stað
fyrir höfuðstöðvar nýlendunnar, en
það var á sléttunni á suðurbökk-
um Kentuckyfjlóts. Staðurinn var
þegar í stað skírður Boonevirki.
Henderson kom 20. apríl, með 50
manna fömneyti, 40 baggahesta og
nautgripahjörð. Þetta var ákjósanleg-
ur tími til þess að byrja upp á nýtt.
Daginn áður hafð það gerst í
Massachussetts, að breskir hermenn,
sem ætluðu að grípa herstöð nýlend-
unnar, vom stöðvaðar í Lexington af
sjálfsipuðum her, sem kölluðu sig
„Minutemen.” Það var upphafsorr-
usta Amerísku byltingarinnar.
Sama dag gaf dómari í Virginiu út
handtökuskipun á Daniel Boone fyrir
_vangreiddar skuldir. Aftan á þessa
handtökuskipun hefur einhver
skrifað „Farinn til Kentucky.”
„ÞAÐ ER EKKERT
„í ÖÐRU LAGI.” ”
Kofaþyrpingin, sem kölluð var
Boonevirki, var ekki nógu stór til þess
að hýsa föruneyta Hendersons, svo
Boone ákvað að byggja annað virki
sem síðar var kallað Bonnesborough,
um 300 metmm ofar við ána.
Verkinu miðaði hægt, og það var
kominn miður júní áður en Boones-
borough tók á sig svip, ferhyrnd
skíðgirðing um 4000 fermetrar. í
hverju horni var bjálkakofi en 26 hús
inni fyrir. Til að sjá virtist þetta
rammgert virki, en það vom op milli