Úrval - 01.05.1976, Qupperneq 44
42
ÍJRVAL
Til umtiugsunar’
STJÖRNMÁL.
Stjórnmál er sú list að ná pening-
um frá þeim ríku og atkvæðum frá
þeim fátæku undir því yfirskyni að
vernda þá hvorn fyrir öðrum.
Cedric Adams.
<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<4C<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<
Listin að stjórna er fyrst og fremst
fólgin í því að kunna að segja „nei”
þannig, að fólkið endi með því að
þakka fyrir það.
K. K. Steincke.
Það versta við stjórnmál er, að
maður getur ekki haldið kjafti og
látið það verka aftur fyrir sig.
Jens Sonderup.
<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<
Stjórnmál er listin að breyta um
afstöðu án þess að fólkið verði þess
vart' André Malraux.
«««««««««««««««««««««««««««««««««<<«««««
í stjórnmálum og ást verður að
mega túlka undanhaldið sem sigur.
Charles de Gaulle.
««««««««««««««««««««««««««<<««««««««««««
Málamiðlun er fólgin í því að
skipta köku þannig, að allir haldi sig
hafa fengið stærsta bitann.
Ludwig Erhard.
««««««««««««««««««««««««««««<<««««««««««
Lýðræði er aðferð, ekki hugsjón.
Johannes Hohlenberg.
<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<
Merkilegasta þjóðin á jörðunni er
hvorki grikkir eða rómverjar, þeldur
danir. Því allt frá því að sögur fyrst
greina frá þeim, hefur þeim verið
hraklega stjórnað, en samt eru þeir
þjóð.
Friðrik mikli.
<<<<<<<C<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<
Mesti löstur kapítalismans er hin
ójafna skipting gæðanna. Mesti löst-
ur kommúnismans er hin jafna
skipting ókostanna.
Winston Churshill.
<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<
Það er misskilningur, að lýðræði sé
sprottið af þörf fólksins til að sjá um
sín mál sjálft. Það er sprottið af
lönguninni til að blanda sér í málefni
annarra.
Johannes Hohlenberg.
<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<
Ágæti lýðræðisins er ekki fólgið í
því, að það gefur okkur góða leiðtoga,
heldur að við getum losnað við þá í
snarhasti, þegar þeir spillast.
J. Bjarkeson.
<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<<
Fyrsta hálfa árið, sem maður situr á
þingi, er maður að brjóta heilann
um, hvernig maður fór að því að ná
kosningu. Þaðan í frá brýtur maður
heilann um, hvernig hinir fóru að því
að ná kjöri. Knud Bro.