Úrval - 01.05.1976, Side 73
HVÍTAGULL DÝRASTIMÁLMUR IHEIMI
71
farið að líf þitt sé undir platínunni
komið, því að hún er sá málmur sem
talinn er öruggastur í hinar litlu
rafhlöður hjartagangráðanna.
I margar aldir vissu menn ekki
hvað þeir áttu að gera við þennan
málm. Á sjöundu öld fyrir Krist
notuðu egyptar hvítagull til skrauts
og indíánar í Suður-Ameríku gerðu
skrautmuni úr því, en aðferð til að
hreinsa málminn fannst ekki fyrr en á
síðari tímum. Spánskir gulleitar-
menn, sem fundu platínumola hjá
fljótum Kólumbíu, álitu þá einskis-
virði og hirtu þá ekki. Indíánar á
sömu slóðum töldu þennan málm
vera „óþroskað gull” og köstuðu
honum í fljótið svo að hann mætti
þroskast og verða gulur. Rússar slógu
rúblur úr platínu á nítjándu öld. í
öðrum löndum var bannað að flytja
inn platínu og lá við henging, en
orsökin var sú að gullhúðuð platína
var oft látin gilda sem gull. En, ef
platína væri ófáanleg í dag, er hætta
á að margs konar iðnaður mundi
stöðvast.
Þeir eiginleikar sem lyft hafa
þessum lítilsvirta málmi til hásætis í
tækniheimi nútímans, em einstæðir
og að sumu leyti mótsagnakenndir.
Þol hvítagulls gegn sýmm og öðrum
efnum erfurðulegt, og bræðslumark-
ið ekki síður, en það er 1774 gráður á
Celsíus. Platína er því notuð við
framleiðsiu trefjaglers og geviefna,
þar sem bráðinn massi fer í gegnum
platínusíu með örsmáum götum
þannig að þræðir myndast. Þannig
em líka deiglur úr platínu notaðar
við framleiðslu vandaðra sjónglerja,
lampa í litsjónvarpstæki og fleira.
Sérhvert annað efni mundi bráðna og
ónýtast í hinum gífurlega hita, sem
skapast við framleiðsluna. Ef dálitlu
af irídíum eða rutheníum er blandað
saman við hvítagull myndast einn
harðasti málmur, sem þekkist. Þessi
málmblanda er því notuð í rakvéla-
blöð og tæki skurðlækna. I uppmna-
legu ástandi er það hinsvegar mjúkur
og teygjanlegur málmur.
Það var sá eiginleiki platínu að
geta myndað loftþétta einangmn við
gler, sem gerði Edison kleift að
fullkomna Ijósapemna, og Röntgen
að smíða gegnumlýsingartækið. Plat-
ína var einnig notuð í fyrstu útvarps-
lampana, en þó að nú séu notuð
ódýrari efni, er enginn málmur sem
jafnast á við hana hvað snertir öryggi
og endingu. Speglar úr platínu og
kóbalti skapa hreyfiafl fyrir hárná-
kvæm armbandsúr og önnur lítil
nákvæmnitæki. Platínurafhlöður,
sem settar em á skipsskrokk úr stáli,
mynda veikan rafstraum sem heldur
botni skipsins hreinum og lausum
við sjávargróður um árabil..
Platína hefur líka gert flugferðir
öruggari en áður var. Kveikjubilanir
sem áttu sér stað þegar fyrstu
þoturnar flugu mjög hátt og lentu í
ísköldu lofti, komu ekki fyrir eftir að
farið var að nota platínu í kveikjuút-
búnaðinn, þar sem hvítagullið gefur
öruggan neista við öll skilyrði. En
þýðingarmesta framlag plarínunnar