Úrval - 01.05.1976, Side 113
HJÖNABÁNDSLEIKURINN
FORÐIST AÐ VERA RÍGBUNDIN
AF HEFÐBUNDNUM
„HLUTVERKUM”.
Einn af aðalþáttum álags þess, sem
fy'.gir hinum vaxandi peningaskorti,
er sú kennd, að ,,maður standi sig
ekki”. Þegar fjölskyldan verður að
sætta sig við lélegri lífskjör eða
eiginkonan neyðist til þess að útvega
sér vinnu utan heimilisins, dregur oft
úr sjálfsvirðingu karlmannsins, jafn-
vel þótt hann geti alls ekkert að þessu
gert. ,,Of margir eiginmenn trúa enn
á þá „útþvældu kenningu”, að
karlmennska þeirra sé metin eftir
hæfileika þierra til þess að afla
veraldlegra gæða,” segir William
Bell, aðstoðarframkvæmdastjóri Fjöl-
skyldu- og barnaþjónustu Seattle-
borgar. ,,Sumir karlmenn verða svo
þunglyndir vegna þessara ímynduðu
mistaka sinna, að þeir missa áhuga á
kynlífi eða verða jafnvel alveg getu-
lausir.”
Einnig geta eiginkonur fundið til
sams konar vanmáttarkenndar, þegar
þeim tekst ekki lengur að láta
heimilisrekstrarpeningana duga út
vikuna. Ein kona minnist þess, að
móður hennar dugðu 35 dollarar
(6.195 kr. á gegni þýðingardags) á
viku á bernskuheimili hennar, og að
hún átti samt alltaf nokkra dollara
afgangs í vikulokin. ,,Mér finnst því,
að ég hafi ekki stjórn á neinu, þegar
mér tekst ekki að láta 75 dollara
(13.275 kr.) duga vikuna á enda.”
segir hún.
Lexían, sem af þessu má læra, er
111
sú, að báðir aðilar verða að laga sig að
breytingunum án þess að verða
rígbundnir I vissum „hlutverkum”.
Jafnvel þótt þið séuð að missa
stjóm á efnahagslegri afkonu fjöl-
skyldunnar, skuluð þið ekki einblína
á vissa þætti fjölskyldulífsins sem
allsherjar sökudólga og sntða þeim
allt of þröngan stakk. Sumt fók,
sérstaklega karlmenn, reyna að láta
til sín taka við stjórn efnahagslegrar
afkomu heimilisins með því að ráðast
gegn vissum þáttum á allt of harkaleg-
an hátt. Ástæðan er ómeðvituð
viðleitni til þess að öðlast uppbót
vegna kenndar um algert getuleysi
gagnvart efnahagsvandanum. Eigin-
kona ein greiddi 20dollara (3.540 kr.)
fyrir saumanámskeið, vegna þess að
hún hélt, að hún gæti sparað peninga
með því að sauma sjálf ýmsan fatnað.
En eiginmaður hennar stöðvaði
greiðslu þeirrar ávísunar. „Kannske
var þetta saumanámskeið í rauninni
alveg prýðileg hugmynd,” viður-
kenndi hann síðar. ,,En á slíkum
tímum sem núna eru, ætlast ég til
þess, að hún leiti ráða hjá mér, áður
en hún eyðir 20 dollurum!”
Annar maður heldur llfinu í
blekkingu sinni um „efnahagslegt
eftirlit og stjórn” með hjálp flókins
bókhaldskerfis vikulegra fjárhags-
áætlana, línurita yfir gegnflæði
reiðufár og rekstur- og efnahagsyfir-
lita. Hann afhendir eiginkonu sinni
eintak af öllum þessum plöggum
ásamt vikulegu minnisblaði um nú-
verandi fjárhagsástand heimilisins.