Úrval - 01.02.1978, Blaðsíða 58
56
ÚRVAL
verulega, ef ekki hin algerlega eina),
mikilsverða siðferðilega og siðfræði-
lega þýðingu fyrir mannkynið. Hún
gerir gildi tæknilegra, og þó öllu
fremur menningarlegra afreka manns-
ins miklu stórfenglegra. Mikilvægi
þeirrar staðreyndar, að mannkynið er
nokkurskonar framvörður efnisins í
að minnsta kosti stórum hluta
geimsins, ef ekki í öllum alheim-
inum, ætti að verða skapandi starfi
hvers einstaklings og alls samgélags-
ins öflug hvatning og auka mjög
ábyrgð þess gagnvart þeim ægilegu
vandamálum sem við blasa. Það ætti
að vera orðið nægilega ljóst, að
tilgangslausar villimannlegar styrj-
aldir og sjálfsmorðseyðilegging um-
hverfisins eru óleyfilegar athafnir.
Orugg vitund þess, að enginn mun
segja manninum fyrir um það,
hvernig þróa skal ytri geiminn og
hvaða aðferðum hin einstaka menn-
ing hans á að beita, mun auk ábyrgð-
ardlfinningu einstaklingsins og alls
mannkynsins gagnvart athöfnum
sínum. Það erum við sjálfir, sem
veljumhvaðviðgerum. ★
Leikstjórinn Harold Clurman hafði oft gaman af að rifja upp
leikritshandrit, sem honum barst í hendur snemma á ferli hans. Það
byrjaði svona: ,Fyrstiþáttur: Tíu þúsund árum fyrir sköpun mannsins.
Annar þáttur: Tveim vikum seinna.
All People are Famous
Kvöld eitt í vonsku veðri tók ég eftir því að blautur og ræfilslegur
hundur var að væflast í garðinum mínum. Ég hélt að hann væri
týndur, lokkaði hann inn til mín og gaf honum volga mjólk. Á
hálsbandinu hans var aðeins númerið fyrir hundaæðissprautuna og
símanúmer, en ekkert heimilisfang. Ég hringdi í númerið, en sá sem
þar varð fyrir svörum kannaðist ekki við neinn hund, hvorki þennan né
annan. Ég hrindi á lögreglustöðvarnar í kring, í dýralæknana, dýra-
heimilin, hundabúin ogallahundavinisemégmundieftir,, en allt kom
fyrir ekki.
Loks hringdi ég á langlínumiðstöðina, sagðihvaðmérværiáhöndum
og spurði, hvort þetta númer gæti hugsanlega verið í öðru fylki. Eftir
langa bið hringdi stöðin til mín aftur. Símadaman hafði rakið númerið
til Phoenix í Arizona og gaf mér samband við það. Það reyndist vera
dýrasjúkrahúsinu þar sem hundurinn hafði fengið sprautuna sína. Eftir
sprautunúmerinu rakti dýralæknirinn slóðina til eiganda hundsins og
komst að því, að hann var nýfluttur til Andover í Massachussetts — í
næsta hús við mig!
N. S.