Þjálfi


Þjálfi - 01.04.1941, Side 14

Þjálfi - 01.04.1941, Side 14
14 Þ J Á L F I önnur inni. Fórum við síðan aftur út á ís- inn og renndum okkur og lékum. Einu sinni fórum við alveg þvert yfir vatnið, og það var nú gaman. Síðan fórum við að búast til heimferðar, og lögðum við af stað um kl. 4. Gekk heimferðin prýðilega. Var sungið mikið og haft hátt í bílnum, því að allir voru kátir og hressir eftir þessa góðu skemmtun úti í heilnæma sveitaloftinu. Bíllinn ók að Miðbæjarskól- anum, og fórum við þar cll úr og hver heim til sín. Aðalheiður Friðriksdóttir. Lagt af stað í sveitina Þann 13. júní 1937 um kl. 7 vakti mamma mig og sagði, að nú yrði ég að hafa hrað- ann á að koma mér í ferðafötin og snæða, áður en ég legði af stað í ferðalagið. Kl. 8 átti ég að fara úr Reykjavík austur í Mýr- dal með bíl frá Kaupfélagi Skaftfellinga í Vík. Ég kvaddi heimafólkið og pabbi fylgdi mér þangað, sem bíllinn var. Ekki var ég heppinn með veður. Þegar við komum upp að Geithálsi, tók að rigna eins og hellt væri úr fötu. Áfram héldum við, unz við komum að Ölfusá. Þá var nú sannarlega þörf á hressingu. Ég var líka úttroðinn af sælgæti og sítróni, þegar lagt var af stað þaðan. Segir nú ekki meira af för minni, fyrr en komið var á áfangastaðinn. Bærinn, sem ég ætlaði að dvelja á, heitir Vatns- skarðshólar. Þegar krakkarnir á bænum heyrðu, að ég væri á leiðinni heim túnið að bænum, hlupu þau undir borð, til þess að þau sæjust ekki. Sjálfur var ég svo feiminn, að ég gleymdi að heilsa. Ástráður Ingvarsson. Móðirin: Hvers vegna ertu að gráta, Nonni minn? Nonni: Krakkarnir segja, að brúðan hennar Stínu sé svo lík mér, að ég hljóti að vera pabbi hennar, en það er alls ekki satt. Afmælið hennar Ásn Ása litla var 9 ára. Bráðum átti hún af- mæli. Það var í næstu viku. Kvöldið áður en þessi langþráði dagur kom, ætlaði hún ekki að geta sofnað. Hún var alltaf að hugsa um, hvað hún fengi í afmælisgjöf. Loks rann upp afmælisdagurinn. Hún vaknaði snemma um morguninn. Og kl. 9 færði mamma henni kaffi og kökur í rúmið. Svo fór hún á fætur og fór fram í eldhús, þar var pabbi hennar. Hann óskaði henni til hamingju og sagði, að hún skyldi ganga út. En fyrir utan bæjardyrnar var skíða- sleði. Hún' fór að hugsa um, hvort nokkur væri kominn. Hún fór inn og spurði, hvort nokkur væri kominn. „Nei,“ sagði pabbi hennar. Þá datt henni allt í einu hið rétta í hug. Nú skildi hún það. Þetta var afmælis- gjöfin hennar. Hún þakkaði pabba og mömmu vel og innilega fyrir gjöfina. Skíða- sleði var sú bezta afmælisgjöf, sem hún hefði getað kosið sér. Guðbjörg Haraldsdóttir. Yiðtal við gamlan skóladreiig1 Ég ætla að hafa viðtal við gamlan skóladreng, það er hann pabbi. Ég ætla að spyrja fyrst, hvort þér hafi þótt gam- an í skólanum? ,,Já, þú getur reitt þig á það. Um þetta leyti, þegar vorið fer í hönd, og daginn lengir, þá minnir það mig fyrst og fremst á skólaárin, og þá langar mig alltaf að vera horfinn nokkur ár aft- ur í tímann.“ Hvað geturðu sagt mér um kennarana, voru þeir ekki misjafnlega góðir, og var þér vel við þá eða illa? „í stórum dráttum gæti ég bezt svarað þér með því, að vitna í kvæði Einars Bene- diktssonar til móður sinnar, en hann segir:

x

Þjálfi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjálfi
https://timarit.is/publication/1899

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.