Þjálfi


Þjálfi - 01.04.1941, Page 18

Þjálfi - 01.04.1941, Page 18
18 Þ J Á L F I vestur að Winnipegvatni. Þar settust þau að og byggðu sér bjálkahús fyrst í stað. Jón stundaði veiðar í vatninu, og þau ræktuðu dálítið land og komu sér upp nokkrum skepnum. Leið ekki á löngu, þar til þeim leið vel í nýja landinu. Þau gátu byggt sér nýtt hús í staðinn fyrir bjálka- húsið. Birgir Magnússon. Barnatímar útvarpsins Mér finnst barnatímar útvarpsins vera mjög misjafnir. Það, sem vantar í barna- tímana, eru meiri hljómleikar, helzt harm- onikuleikar. Einnig finnst mér að skipta ætti barnatímunum í þrennt: hljómleika, framhaldssögur fyrir stúlkur og skemmti- legar drengjasögur. Síðan hafa söng og sögur annan hvorn tíma fyrir litlu börnin. Einnig væri mjög gaman að hafa leikrit einu sinni í mánuði, sem væri annan mán- uðinn fyrir stúlkur en hinn fyrir drengi. Sveinn Hallgrímsson. Afmælisdagur Sólveig litla átti afmæli 9. marz, og mik- ið hlakkaði hún til afmælisdagsins. Mamma hennar hafði leyft henni að bjóða nokkrum vinstúlkum sínum í afmælisveizlu. Sólveig vaknaði snemma á afmælisdaginn og fór undireins á fætur, til þess að hjálpa mömmu sinni við morgunverkin. Eftir há- degið fór hún að búa sig undir að taka á móti gestunum. Þegar klukkan var orðin þrjú, komu vinstúlkur Sólveigar, hver eftir aðra, þangað til þær voru orðnar sjö. Þær gáfu allar Sólveigu ofurlitla afmælisgjöf, sem henni þótti mjög vænt um. Vinkon- urnar fengu nú súkkulaði og fínar kökur með. Þegar þær höfðu lokið við að drekka, fóru þær í ýmsa leiki. Síðan fengu þær fínan búðing. Eftir það kvöddust vinstúlk- urnar og þökkuðu hver annarri fyrir skemmtilegan dag. Þegar Sólveig var hátt- uð um kvöldið, fór hún að hugsa um, hvað afmælisdagurinn hennar hefði verið skemmtilegur. Hún fór með bænirnar sín- ar og sofnaði út frá því. Lilja Enoksdóttir. Þeg*ar óg fór fyrst í sveit Þegar ég var 10 ára, fór ég fyrst í sveit. Var það að Vörðufelli á Skógarströnd í Snæfellsnessýslu. Klukkan hálf sjö fagran vormorgun fór ég að klæða mig. Ég og mamma ætluðum með Laxfoss kl. 7. Ferðin gekk ágætlega, og þótti mér gaman á skipinu. Síðan varð ég að fara ríðandi langa leið, og ég hafði aldrei komið á hestbak fyrr, en þrátt fyrir það gekk allt vel. Um miðnætti komst ég þangað, sem ég átti að fara. Dagarnir liðu fljótt í sveitinni, því að mér þótti mjög gaman. Það var svo gaman að tína blóm og leika sér að ýmsu úti. Stundum rakaði ég. Fyrsta daginn, sem ég rakaði, varð ég veik. Reyndist það botnlangabólga, sem að mér gekk, en mér batnaði fljótlega. Mér þótti mjög gaman að skepnunum í sveitinni, því að mér þykir vænt um öll dýr, sem á íslandi eru, og ég vona, að það þyki öllum. Það var svo gaman að sjá lömbin hamingjusöm hjá mæðrum sínum og folöldin hlaupa í kringum sínar mömmur. Svona leið sumarið, og svo varð ég að fara heim, þegar leið að hausti. Ólöf V. Húnfjörö. Taluaþraiit. Raðið þessum tölum þann- ig, að útkoman verði 22 í hverjum dáiki, láreLt og lóð- rétt. 5 6 2 8 co 7 5 7 4 2 7 3 7 5 4 CO S. F.

x

Þjálfi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjálfi
https://timarit.is/publication/1899

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.