Garður - 01.10.1945, Síða 76
Háskólaþáttur
Hér í ritinu mun framvegis
!verða skýrt frá félagslífi stúdenta
í stuttum þætti. Félagsstarfsemin
innan háskólans er ekki ómerk-
asti þátturinn í starfi hans. A þeim
vettvangi mótast að verulegu leyti
félagshyggja margra þeirra, sem
síðar eiga eftir að verða forystu-
menn á ýmsum sviðum þjóðlífsins.
Þess vegna ætti ekki að vera ófróð-
legt að kynnast lítillega því urn-
hverfi, þar sem þeir hafa hlotið
þetta uppeldi sitt.
Innan skólans eru mörg og
margs kon-ar félög, bræðrafélag
hinna trúuðu, róttækur félagsskap-
ur hinna trúlausu, íþróttafélag,
taflfélag, lcikfélag og nokkur póli-
tísk félög. Pólitísku félögin halda
uppi mestri félagsstarfsemi. Á
fundum þeirra ber oft margt á
góma, og mönnum hleypur kapp í
kinn við að rökræða ýrnis mál. í>ó
er verulegur munur á þessum um-
ræðum og pólitískri starfsemi inn-
an skólans og sams konar starf-
semi úti á meðal þjóðarinnar. Hér
eru flestir óbundnir af hagsmun-
um daglegs starfs og veitist því
hægara að eiga hugsjónir og ræða
málefni frá huglægu sjónarmiði en
gert er, þar sem hagsmunabarátt-
an er efst á baugi og skapar mönn-
um skoðanir. Á hverju hausti fara
fram lcosningar til Stúdentaráðs,
en það er helzti málsvari stúd-
enta. Kosningum þessum svipar til
bæjarstjórnarkosninga. Framboðs-
fundir eru haldnir, flokkarnir
bjóða fram lista, og atkvæðum er
smalað. Mörgum mun eflaust
finnast, að flest kosningaloforðin
og deiluatriðin séu léttvæg, þar
sem þau eigi grípa til neinna raun-
hæfra framkvæmda, en á vett-
vangi háskólapólitíkurinnar er
fyrst og fremst barizt um menn og
hugtök. Þess vegna verður að
dæma hana iit frá því sjónarmiði.
I pólitísku félögin skipa menn
sér eftir flokkum. Sjálfstæðismenn
eru í „Vöku“; félagi lýðræðissinn-
aðra stúdenta“, Framsóknarmenn
í „Félagi frjálslyndra stúdenta“,
Sósíalistar í „Félagi róttækra stúd-
enta“ og Alþýðuflokksmenn í „Al-
þýðuflokksfélagi háskólastúdenta“.
STÚDENTAARÁÐS-
KOSNINGARNAR 1945.
Við kosningarnar haustið 1944
komu fram 3 listar, A-listi, sem
Félag frjálslyndra og Alþýðu-
flokksfélagið studdu. Hlaut hann