Úrval - 01.04.1983, Blaðsíða 18
16
URVAL
skýjabakki er að færast yfir úr vestri.
Það eru dökkir bólstrar og ofan þeirra
eru hraðfleyg hvít stormský. Hæðin
sem hefur verið kyrrstæð yfir Kletta-
fjöllum í hálfan mánuð — dag eftir
dag hefur verið heiðskírt veður og
hlýindi — gæti verið á undanhaldi og
þá kæmi kannski langþráður snjór
sem veðurfræðingar hafa verið að
ræða um.
Taosfjall er í landi indíána og þeir
hafa talið það heilagt frá forneskju.
Reyndar er dulúðin yfir fjallinu
næstum þrúgandi og virðingin fyrir
því kemur meira að segja fram í tali
skíðafólksins. Jean Meyer, fyrrverandi
franskur skíðakappi, eigandi og
stjórnandi St. Bernhard hótelsins í
Taos, segir: „Fjallið er faliegt og
heldur slnu — við höfum ekki breytt
því með vélum okkar. Slóðirnar fylgja
landslaginu eðlilega og eru í takt við
brekkurnar. Hæðir og dældir eru
látnar halda sér. Náttúra eða eðli
fjallsins er eins og í upphafi. ’ ’
I kvöld bíða Blake og vinnu-
hóparnir í von um snjókomu en á
meðan er ákveðið að setja í gang snjó-
vélarnar tvær sem til eru í dalnum.
Þessar vélar eru færanlegir, hraðgeng-
ir blásarar sem dreifa vatnsúða með
miklum þrýstingi. Ef frost er meira en
fjórar gráður frjósa droparnir og
verða að hrúgum af tilbúnum snjó
sem plógarnir geta dreift um svæði
sem orðin eru illilega auð.
Um áttaleytið er Wheeler-
tindurinn, sem er yfir 4000 metra hár
og tæplega 5 km í burtu til
suðausturs, horfinn í kófið. Kevin
Beardsley, yfirmaður skíðaeftirlitsins,
fer þá að leiða hugann að snjó-
flóðum. Á tveimur undanförnum
árum hafa tveir skíðamenn farist í
snjóflóðum hér í fjöllunum. í nótt
myndi mikii snjókoma skilja eftir sig
þykkt lag af lausamjöll ofan á hjarn-
inu í bröttum hlíðunum. Nokkrum
klukkustundum eftir að byrjaði að
snjóa yrði hætta á flóðum.
Dúndrað á fjöllin
Við slíkar aðstæður er venjan að
loka neðstu brekkunum og framkalla
snjóflóð af mannavöldum áður en of
mikill snjór nær að safnast fyrir. Til
þessa hefur 105 mm fallbyssu verið
komið fyrir undir neðstu hlíðunum.
Þaðan er hægt að skjóta á brúnir og
tinda í kring og þá eru skotin látin
dynja á fjallinu þangað til snjórinn
losnar og kemur æðandi niður í
gegnum skóginn. Þegar ekki er hægt
að ná til snjóflóðasvæða með skotum
fer eftirlitsmaður á skíðum að brún
svæðisins og kastar einu kílói af
sprengiefni í snjóinn. Um það bil
3000 svona handsprengjur eru
notaðar á hverju ári.
Út um eldhúsgluggann sinn sér
Beardsley ljósin í skíðaþorpinu ofar í
brekkunni. Þetta er eftir kvöldmat og
gestirnir eru 1 gönguferð í köldu
fjallaloftinu. Honum er ljóst að
margir hinna nýkomnu eru ekki sér-
staklega vel á sig komnir líkamlega og
verða andstuttir í 11.000 feta hæð yfir
sjávarmáli. En á morgun verða þeir