Úrval - 01.04.1983, Page 28
26
ÚRVAL
ef til þeirra næst, skal skilað öllu því
sem úr skipsflaki kemur, annars er
það selt á uppboði sem venjulega er
haldið af tollyfirvöldum, Oftast lenda
munirnir svo á almennum söfnum
eða hjá einkasöfnurum. Björgunar-
fyrirtækið (hjá Sténuit er það Henri
Delauze) fær björgunarlaun sem geta
verið frá 75% og alit upp í heildar-
verðmæti þess sem selt er þegar frá
hafa verið dregnir skattar og
kostnaður.
Sténuit hefur skrifað 13 bækur um
neðansjávarævintýri. Einnig hefur
hann ritað upp undir eitt hundrað
greinar um sama efni. Hann er mjög
eftirsóttur fyrirlesari. Þrjár breskar
sjónvarpsmyndir hafa verið gerðar um
rannsóknarleiðangra hans. Hvernig
hefur maðurinn svo tíma til alls
þessa? ,Jú, það er auðvelt,” sagði
Sténuit, „þegar maður lifir því lífi
sem mann langar að lifa. ’ ’
,,Hvað er hún Sigga eiginlega gömul?”
,,Ég veit það ekki, síðast þegar hún átti afmæli leið yfir tvo gesti
vegna hitans frá kertunum á tertunni.
„Nágrannarnir eru alltaf að kvarta undan óþekktinni 1 honum
Steina, ’ ’ sagði móðirin við foðurinn.
, Já, ég veit. Hann er til vandræða,” sagði pabbinn. ,,Ætli sé ekki
réttast að gefa honum hjól? ”
, ,Heldurðu að hann skáni eitthvað ef þú gefur honum hjól? ”
„Skáni og skáni ekki, athafnasemin dreifist yfir stærra svæði.”
Axel var að koma úr siglingu. Hann gekk til tollvarðanna með
stóra tösku undir hendinni og sagði: „Ef ég kem hér á morgun með
sex vínflöskur fæ ég þá að fara með þær í gegn ef ég gef ykkur eina?
„Alls ekki,” þrumaði tollvörðurinn. „Við þiggjum engar mútur
hér.”
Axel svaraði engu og fór í gegn með farangur sinn. Daginn eftir fór
hann um borð og svo aftur í gegnum tollinn með töskuna undir
hendinni. Tollvörðurinn leit á hann og spurði:
„Hvar eru vínflöskurnar sem þú varst að tala um í gær?”
„Ó,” svaraði Axel. „Égfór með þær f gegn f gær.”
Leikkonan nýgifta kom heim með sjötta eiginmanninn og kynnti
hann fyrir gjafvaxta dóttur sinni.
„Segðu nú eitthvað fallegt við „nýja pabba”,” sagði leikkonan
við hana.
,, Viltu skrifa í gestabókina mína? ’ ’ spurði dóttirin.