Úrval - 01.04.1983, Síða 46
44
ÚRVAL
sem eru örvhentir eru tíðast annaðhvort
frumburðir eða örverpi.
En orsökin er enn óljós líkt og á sér
stað um flest önnur fyrirbæri sem
margar kenningar eru til um.
Nútíma vísindamenn hneigjast til
að álíta að það stafi fyrst og fremst af
meðfæddum, arfgengum eiginleik-
um að menn eru örvhentir. Vitað er
að 50% hjóna, sem bæði eru örvhent,
eignast örvhent börn. Ef aðeins annað
hjónanna er örvhent lækkar hlutfallið
niður í 16%. Meðal rétthentra for-
eldra er hlutfallið mjög lágt. Annað
atriði, sem bendir til arfgengis, er að
örvhentir karlar eru fleiri heldur en
örvhentar konur.
Menn geta verið bæði „algerlega”
og ,,að hluta til” rétthentir eða
örvhentir. Hjá þeim sem eru
„fullkomlega” rétthentir eru hægri
fótur, hægra auga og eyra, svo og
hægri hönd, leiknari og nytsamari.
„Fullkomlega” örvhentir sýna sömu
eiginleika að því er varðar líffærin
vinstra megin. Leiknari höndin er í
báðum tilfellum lítið eitt stærri,
naglrótin breiðari á lida fingri og
æðakerfið greiniiegra á handarbak-
inu. Samsvarandi helmingur brjóst-
kassans er einnig lítið eitt stærri um
sig. Það eru þó ekki mjög margir sem
eru fullkomlega rétt- eða örvhentir.
Hvað er „eðlilegt"?
Frá fornu fari hefur verið álitið að
örvhentir séu visst frávik frá reglunni
því að þegar öllu er á botninn hvolft
álítur meirihlutinn alltaf að það sem
hann gerir sé hið eina rétta. Þessi
hugsun þekkistí öllum samfélögum.
Sumir vísindamenn halda því
fram að örvhentir séu lélegri náms-
menn og iélegri starfsmenn heldur en
rétthent fólk. Mjög lítil rök eru fyrir
þessari fullyrðingu þar sem fyrir
hendi eru mjög sterk gagnrök.
Leonardo da Vinci var örvhentur.
Yfirgnæfandi meirihluti vísinda-
manna, sem starfa á viðkomandi
sviði, segir að rétthentir og örvhentir
séu jafnhæfir bæði til náms og starfs.
Allt bendir til að þetta sé sennilegasta
niðurstaðan. Ríkjandi notkun hægri
eða vinstri handar er ekki í sjálfu sér
merki um gáfnafar, góðvild eða
örlæti. Það er ekki frekar ástæða til
þess að vera montinn af því að vera
rétthentur fremur en örvhentur og
enginn þarf að hafa minnstu minni-
máttarkennd af þeim sökum.
Leyndardómar heilans
Örvhent fólk hefur almennt viss
andleg, sálræn og persónuleg
einkenni. Sem dæmi skulum við taka
svið þar sem örvhentir láta mjög að
sér kveða — íþróttir. Margir frábærir
hnefaleikamenn, skylmingamenn og
blakmenn eru örvhentir. Og vissulega
valda þeir andstæðingum sínum
miklum höfuðverk. En miklu þýðing-
armeira er hið sérstaka kerfi sálrænna
viðbragða sem komið hefur í ljós hjá
örvhentu fólki sem stuðlar að skjótari
skynjun, skipulagningu hreyfínga og
viðbrögðum við atburðum heldur en
hjá rétthentum. Augljóslega hafa