Upp í vindinn - 01.05.1999, Qupperneq 20

Upp í vindinn - 01.05.1999, Qupperneq 20
... UPP I VINDINN Grundvallarreglur í skipulagi Dæmi: Höfuðborgarsvæbib - Flugvöllurinn Trausti Valsson skipulagsfræðingur Lauk Dipl.lng Architect prófi frá University of Technolgoy í V-Berlín 1972, og doktorsprófi frá Berkeley 1987. Hefur gegnt dósentstöðu í umhverfis- og byggingarverkfræðiskor frá 1992. Þegar stúdentar útskrifast úr háskóla bíður þeirra að spreyta sig á að nota regl- urnar, prinsípin, sem þeir lærðu í náminu til að leita lausna á helstu vandamálum þess skipulagssvæðis þar sem þeir koma til með að starfa. í þessari grein mun und- irritaður segja frá nokkrum aðferðum sem hann tók að beita, - nýkominn úr námi 1972, - í kerfisbundinni leit að nýjum hugmyndum um skipulag höfuðborgar- svæðisins. Fyrsta atriðið er varðar þessa leit tengist þó ekki fræðilegum aðferðum, heldur þeirri afstöðu til viðfangsefna sem er flestu ungu fólki sameiginleg þegar það kemur út úr skóla; að trúa á mátt sinn og megin og að finnast flest það sem eldri kynslóðin gerði úrelt og hallærislegt. Þannig þótti manni t.d. fáránlegt að kljúfa ætti borgina þvers og kruss með hraðbrautum sem, - vegna of konsentreraðar umferðar, - mundi kalla á tugmilljarða fjárfestingar, t.d. með níu brúagatnamótum á Miklubraut svo eitt dæmi sé tekið. (Ca. 1/2 milljarður stykkið, - á verðlagi 1999). En nú kom að aðalvandanum, og hann var sá að ekki dugði að tala bara af fordæmingu um skipulagsáætlanirnar, heldur varð maður nú að gera svo vel og finna aðrar og betri lausnir, - og ekki bara það, heldur líka að koma þeim á framfæri við almenn- ing, - oft við lítinn fögnuð yfirboðaranna, sem báru ábyrgð á „allri vitleysunni“. Hóf nú undirritaður að fara yfir prinsípin úr náminu til að reyna að finna lausnir á öllum þessum ógurlegu vandamálum. Tók hann nú til við að undirbúa mikla grein í Lesbók Mbl., sem skyldi leysa helst öll vandamál skipulags höfuðborgarsvæðisins. (Lesb. Mbl. 12. ágúst 1973). í þessu ósmáa viðfangsefni studdist þessi glaðbeitti maður t.d. við eftirfarandi grundvallarreglur úr námi sínu: Prinsíp 1: Stofnbrautir eiga ekki að liggja í gegnum byggðina, heldur utan hennar! Út úr þessari reglu skaut hugmynd um Of- anbyggðaveg, upp kollinum. Og svo einnig hugmyndinni um Framanbyggðaveg (Sundabraut), sem undirritaður fékk reyndar ekki fyrr en árið 1974. Prinsíp 2: Tengja skal „skækla“ vegakerfis og byggðar saman þannig að umferðin safnist síður á fáa punkta! - Hugmynd um hvernig þetta mætti gera orðaði undirritaður svo í Lesbókar- greininni: „Vil ég þar fyrst koma með tillögu að umferðarbraut á brú og fyllingu frá Álftanesi yfir til vesturbæjarins í Reykjavík, en með þessari leið komumst við aftur fyrir aðalumferðartappana á Hafnarfjarðarveginum og í Reykjavík“. Petta var sem sagt ein af ábendingum undirritaðs um hvernig hægt væri að forðast að fara upp á hið feykidýra stig brúargatnamóta sem leiðir af of fáum og því um leið of stórum stofnbrautum á innkomuleiðum til borg- arinnar. Prinsíp 3: Byggja minna af íbúðum í útjöðrum höfuðborgar- svæðisins, heldur frekar á lítt nýttum svæðum nálægt helstu at- vinnusvæðum byggðarinnar sem þá voru mest vestan Kringlumýrarbrautar í Reykjavík. - Fékk ég hér fljótt augastað á flugvallarsvæðinu, sem er samkvæmt enn einu prinsípinu, er ekki rétt tegund af landnotkun á svæði sem með nokkrum rétti má kalla miðbæjarsvæði. Prinsíp 4: Hvarvetna er stefnt að því í heiminum að koma mengandi og hættu- legri starfsemi. út úr borgum, t.d. flugvöll- um og olíuhöfnum (slík höfn er í útjaðri miðbæjarins, þ.e. í Örfirisey, sem er ekki gott mál). Hér er komið að því atriði að maður á að fylgja öllu því sem vísar til framtíðar, sem þýðir að geysimikilvægt er að vera næm- ur á tilhneigingar (trends) í þróun borga, - sem leiðir okkur að næstu reglu: Prinsíp 5: Skrá þarf niður allar tilhneigingar, - og extrapólera síðan hvað þróun og útfærsla þessara tilhneiginga kann að þýða Hugmynd TV a& skipulagi vegna þingsályktunartillögu 1975. Nú stefnir í innanlandsflug lítilla flugvalla og því þarf helmingi minni flugvöll. 20

x

Upp í vindinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Upp í vindinn
https://timarit.is/publication/1929

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.