Upp í vindinn - 01.05.1999, Side 50
... UPP I VINDINN
Mynd 3. Slaufugatnamót.
Mynd 4. Tveggja slaufu gatnamót.
Mynd 5. Gatnamót me& flugrampa.
vagnarnir gætu þverað Réttarholtsveg og
Skeiðarvog, sem minnkar umferðarör-
yggi gatnamótanna.
Eftir yfirferð á þessum lausnum þóttu
þær allar hafa verulega ágalla og var því
ákveðið að reyna að finna lausn sem tæki
á þessum göllum og þá helst að fækka
þverunum gangandi umferðar og um-
ferðarstrauma og gera strætisvögnum
kleift að aka eftir Miklubraut. í framhaldi
af þessu lögðu hönnuðir frarn tillögu að
svonefndum tveggja slaufu gatnamótum
sem sýnd eru á mynd 4. Pessi tillaga er
með römpum og slaufum í tveimur horn-
um og leysir flest þau vandamál sem tal-
in voru erfiðust í fyrri tillögum. Hér eru
ljósagatnamót beggja vegna Miklubrautar
og þar er öll umferð sem fer inn á Miklu-
braut leidd í slaufum í NA- og SV-horn-
um gatnamótanna, þannig að SA- og NV-
römpum er nú sleppt. Stærsti beygju-
straumurinn er nú í fríu flæði á einni
akrein í stað tveggja en umferð frá Réttar-
holtsvegi austur Miklubraut þarf nú að
flétta sig við strauminn í slaufunni. Allir
straumar fara yfir Miklubraut á einni brú
í stað tveggja í slaufulausninni. Stóri
beygjustraumurinn fylgir nú hæðarlegu
Réttarholtsvegar lengra til suðurs svo SV-
slaufa stækkar vegna aukins hæðarmunar
við Miklubraut. Afköst gatnamótanna eru
nrikil, allir straumar í römpum og slauf-
um eru á einni akrein, strætisvagnar geta
áfram ekið á Miklubraut, öryggi gangandi
vegfarenda er mikið þar sem ekki þarf að
fara yfir neina akbraut á gatnamótunum
og minni hávaðamengun er við Rauða-
gerði miðað við fyrri tillögur. Helstu
ókostir lausnarinnar eru að ökuleiðir í
gatnamótunum lengjast, fléttun á sér stað
í SV-slaufu, vegalengd frá nyrðri gatna-
mótunum að tengingum við Mörkina og
Fákafen er stutt, þeir sem ætla að taka
hægri beygju inn á Miklubraut beygja
fyrst til vinstri og lóð við Mörkina 2 fer
að mestu undir gatnamótin. Miðað við
fyrri lausnir er þessi samt talin óumdeil-
anlega best með tilliti til umferðarörygg-
is.
Einnig var skoðað hvort hægt væri að
leysa vandamál gatnamótanna á ódýrari
hátt, þ.e. með flugrampa. Þá er átt við
sérstakan rampa og brú fyrir stóra
beygjustrauminn af Skeiðarvogi og aust-
ur Miklubraut, að öðru leyti yrðu gatna-
rnótin í plani eins og áður. Mynd 5 sýnir
þennan rampa. Þessi lausn þótti ekki fýsi-
leg þar sem vandamálin eru ekki ein-
skorðuð við þennan umferðarstraum og
má þar nefna öryggi gangandi vegfarenda
50