Upp í vindinn - 01.05.2005, Qupperneq 4

Upp í vindinn - 01.05.2005, Qupperneq 4
...upp \ vindinn EFNISYFIRLIT NÝLEGAR GÖNGUBRÝR Á ÍSLANDI 6 LÍKINDAFRÆÐILEGT JARÐSKJÁLFTA- ÁHÆTTUKORT AF ÍSLANDI 18 BYLTING í STEINSTEYPU- TÆKNI 26 AÐ MALBIKA EÐA MALBIKA EKKI 28 STRAUMFRÆÐILEGT LÍKAN AF YFIRFALLI VIÐ KÁRAH N J Ú KASTÍ FLU 34 MÆLINGAR Á GANGGÆÐUM REIÐHESTA 40 SETTJARNIR VIÐ SÆVARHÖFÐA 48 ÚTSKRIFTARFERÐ KÍNASAGA 52 Fremsta röð frá vinstri: Kolbeinn Tumi Daðason, Laila Sif Cohagen, Ragnhildur Ingunn Jónsdóttir, Katrín Jóhannesdóttir, Víkingur Cuðmundsson, Berglind Rósa Halldórsdóttir, íris Guðnadóttir, Sverrir Bollason. Mið röð frá vinstri: Unnur Helga Jónsdóttir, Þorbjörg Sævarsdóttir, Olga Perla Nielsen Egilsdóttir, Þórunn Sigurðardóttir, Gyða Mjöll Ingólfsdóttir, Halla Hrund Skúladóttir, Guðlaug Sigurðardóttir, Soffía Hauksdóttir, Gróa Helga Eggertsdóttir, Kenneth Breiðfjörð. Aftasta röð frá vinstri: Jóhannes Þór Ágústarson, Þórólfur Nielsen, Þorgeir Hólm Ólafsson, Andrés Heimir Árnason, Gunnar Arnar Gunnarsson, Lárus Helgi Lárusson, Finnur Gíslason, Kristinn Pétur Skúlason, Guðmundur Ármann Böðvarsson, Sigurður Már Valsson, Guðjón Magnússon. Ágæti lesandi Út er kominn 24. árgangur blaðsins „...upp í vindinn". Blaðið er gefið út af þriðja árs nemum við umhverfis- og byggingarverkfræðiskor Háskóla íslands. Um leið og blaðið er vettvangur fag- legrar umfjöllunar um verkfræðileg málefni er það lykilþáttur í fjármögnun útskriftarferðar okk- ar til Afríku I maí. Ferðinni er heitið til Afríku en ekki er vitað til þess að áður hafi útskriftarhópur héðan lagt leið sína í frumskóginn. Hópurinn dvelur í 12 daga í Egyptalandi þar sem pýramídarnir í Cairo og bókasafnið í Alexandríu eru meðal þess sem skoðað verður. Farin verður ferð að Súez- skurðinum og verkfræðideild háskólans I Mansoura heimsótt. Dvölinni í Egyptlandi lýkur svo með fjögurra daga siglingu á stórfljótinu Níl þar sem Aswan stíflan verður skoðuð. í Kenýa verður einnig dvalið í 12 daga og er hápunkturinn fjögurra daga safaríferð auk þess sem dvalið verður á glæsilegu strandhóteli og lífsins notið tii fullnustu. Hópurinn telur 22 stúd- enta auk nokkurra maka en með í för verður samgöngugúrúinn og aðjúnktinn Þorsteinn Þor- steinsson. Við þökkum greinarhöfundum fyrir skrif sín og auglýsendum og styrktaraðilum fyrir fram- lag sitt. Án þeirra hefði útgáfa þessa blaðs ekki verið möguleg. Ritstjórn Útgefendur og ábyrgðarmenn: Þriðja árs nemar við umhverfis- og byggingarverkfræðiskor Háskóla fslands Ritstjórn: Kolbeinn Tumi Daðason Þórólfur Nielsen Umbrot og prentun: íslandsprent Blaðinu er dreift til félaga í Verkfræðingafélagi íslands, Arkitektafélagi íslands, Stéttarfé- lagi verkfræðinga, Tæknifræðingafélagi íslands, auk viðeigandi fagaðila innan Samtaka iðnaðarins. Blaðinu er einnig dreift til bókasafna og fjölda fyrirtækja. 4

x

Upp í vindinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Upp í vindinn
https://timarit.is/publication/1929

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.