Upp í vindinn - 01.05.2005, Blaðsíða 6
...upp í vindinn
Nýlegar göngubrýr á íslandi
1 Inngangur
Fyrsta göngubrú yfir stofnbraut á höfuð-
borgarsvæðinu var göngubrú yfir Kringlu-
mýrarbraut í Fossvogi sem myndaði þannig
samfelldan stofnstíg úr Elliðaárdal um
Fossvogsdal yfir í Nauthólsvík og þaðan út
á Ægisíðu í vesturbæ Reykjavíkur. Brúin var
tekin í notkun árið 1995. Síðan þá hafa alls
átta göngubrýr verið byggðar á stofn-
brautakerfi höfuðborgarsvæðisins og þrjár
til viðbótar eru I byggingu.
Hér verður gerð grein fyrir þremur
göngubrúm sem nú eru I byggingu á
Hringbraut og Njarðargötu og tveimur ný-
legum göngubrúm á Reykjanesbraut.
Hönnun þessara brúa hefur verið I sam-
starfi Línuhönnunar og Studio Granda arki-
tekta. Þessar göngubrýr þjóna fyrst og
fremst sem hluti af samgöngukerfi höfuð-
borgarsvæðisins. Annað hlutverk göngu-
brúa getur verið útivist og hér verður einnig
fjallað um nýlega byggðar göngubrýr á há-
lendinu sem bæta aðgengi og auka öryggi
göngufólks.
Göngubrýr yfir stofnbrautir á
höfuðborgarsvæðinu
Kringlumýrarbraut í Fossvogi 1995
Miklabraut við Rauðagerði 1997
Kringlumýrarbraut við Sóltún 1998
Vesturlandsvegur í Mosfellsbæ 1998
Miklabraut við Grundargerði 2000
Miklabraut við Kringluna 2002
Hafnarfjarðarvegur við Hraunsholt 2002
Reykjanesbraut við Stekkjarbakka 2003
Reykjanesbraut í Hafnarfirði 2003
Hringbraut vestan Njarðargötu
er í byggingu 2005
Hringbrautvið Læknagarð
er í byggingu 2005
Njarðargata norðan Hringbrautar
er í byggingu 2005
Guðmundur Valur
Guðmundsson er
byg g i n g a r ve r kf ræð-
ingur og vinnur á
vega- og brúarsviði
Línuhönnunar hf.
Baldvin Einarsson
er byggingarverk-
fræðingur og er
JL' k sviðsstjóri brúa- og
vegasviðs Línuhönn-
unar hf. auk þess að
vera aðjúnkt við verk-
fræðideild Háskóla
Islands.
2 Göngubrýr á Hringbraut
í maí árið 2003 efndu Umhverfis- og
tæknisvið Reykjavíkurborgar og Vegagerðin
til samkeppni um hönnun þriggja göngu-
brúa í Reykjavík, tveggja yfir Hringbraut og
einnar yfir Njarðargötu. Samkeppnistillag-
an var unnin í samstarfi Línuhönnunar og
Studio Granda.
Um var að ræða tveggja þrepa sam-
keppni. Á fyrra þrepi samkeppninnar var
nafnleynd keppenda og komst Línuhönn-
un og Studio Granda áfram ásamt tveimur
öðrum hópum. í síðari þrepi voru höfund-
ar þekktir og var skilað inn tillögum í ágúst
2003. Niðurstaða dómnefndar lá fyrir 30.
ágúst 2003 og var tillaga Línuhönnunar og
Studio Granda valin áfram til frekari hönn-
unar.
Umsögn dómnefndar um tillögu Línuhönn-
unar og Studio Granda var eftirfarandi:
„Akreinar eru brúaðar með svifléttri
lausn sem hvítir á súlum í miðdeilum og til
enda. Landtaka brúnna og aðlögun að
landi er vel leyst með framlengingu brúa
niður í landhæð. Cönguleiðir um brýrnar
tengjast vel gönguleiðum svæðisins með
svífandi tengingu yfir friðland Vatnsmýr-
innar, en þar þarf þó að huga betur að út-
færslu. Hefðbundin og sannfærandi lausn.
Steypt eftirspennt lausn er hagkvæm með
tilliti til viðhalds. Sveigjanleiki lausnar er
mikill með tilliti til breytilegra haflengda
og byggingaraðstæðna. “
2.1 Stígakerfi, samgönguleiðir
Hluti af samkeppninni var að koma með
tillögur að stígakerfinu sem tengdist
göngubrúnum. Nálægð brúnna við Land-
spítalann, Háskóla íslands og miðbæ
Reykjavíkur þýðir að það er töluverð um-
ferð gangandi og hjólandi vegfarenda og er
hún óvíða meiri annars staðar á höfuð-
borgarsvæðinu. Mikil áhersla var lögð á að
stofnstígakerfið yrði sem greiðfærast fyrir
gangandi og hjólandi vegfarendar þar sem
það er hluti af samgöngukerfi borgarinnar.
Jafnframt er tekið tillit til fatlaðra á þann
hátt að halli stíganna sé ekki of mikill.
2.2 Almennt um útlit
Útlit brúnna miðar allt að því að yfirbragð-
ið verði létt og bjart og að brúin hverfi sem
mest inn í umhverfi sitt.
Neðra byrði brúardekksins er mótað
sem slétt samfellt yfirborð, sem dregið er
yfir „rörið", sem er eins konar kjölur undir
gangbrautinni. Þetta dregur úr umfangi
brúarinnar neðan frá séð og léttir yfirbragð-
ið. Súlur ganga beint upp í brúarkjölinn án
nokkurrar sérstakrar útfærslu þar sem hún
ECL stjórnstöðvar fyrir hitakerfi
Stjórnendur fyrirtækja!
Aukið veilíðan starfsfólks og lækkið rekstrarkostnað
hitakerfisins með ECL stjórnstöð á hitakerfið
Kynnið ykkur kosti og verð 1
ECL stjórnstöðvarinnar frá Danfoss W Danfoss hf
Þægindi - Öryggi - Sparnaður Skútuvogi 6 Sími 510 4100 www.danfoss.is
6