Upp í vindinn - 01.05.2005, Page 9

Upp í vindinn - 01.05.2005, Page 9
...upp í vlndinn Mynd 2 - Útfærsla af göngubrúm á Hring- braut úr forsteyptum einingum þar sem rauði kubburinn á myndinni er steyptur á staðnum og steypir saman einingarnar. mætir dekki. Ekki er þörf á ákeyrsluvörn fyr- ir súlur. Yfirborð á brúardekki er glattað og kústað beint upp úr steypunni á steyptri brú. Handriðið er gert úr grönnum teinum, sem soðnir eru á samfellda plötu neðst. Harðviðarhandlisti gengur eftir brúnni endilangri að innanverðu, svo yfirborðið er hlýtt og mjúkt þar sem fólk snertir það. Brúin er lýst með götulýsingunni. 2.3 Staðsetning og umhverfi Göngubrú á Hringbraut við Njarðargötu tengist bæði aðalgöngustíg sem liggur suð- ur með Njarðargötu og göngustíg sem ligg- ur vestur með Hringbraut í átt að Háskól- anum. Staðsetning brúarinnar og lögun gerir þessum leiðum jafnhátt undir höfði og vegfarandinn skynjar ekki að hann sé að taka krók á leið sinni. Brúin liggur í sveig með um 60 m radíus að norðanverðu en kreppist þegar hún svífur yfir friðlandið í Vatnsmýri í 30 m radíus og endar í 15 m radíus. Að auki er gert ráð fyrir að gangandi vegfarendur hafi þann möguleika að ganga niður stiga um leið og komið er yfir Hring- braut að sunnan. Heildarlengd brúarinnar er 169,3 m í átta höfum þar sem lengsta hafið er 27,1 m langt og það stysta 15,4 m endahaf að sunnan. Yfirbyggingin nær rúmlega fjóra metra aftur fyrir frambrún endastöpla hvoru megin. Staðsetning millisúlna og hafskiptingar gera ráð fyrir að á gatnamót- um Hringbrautar og Njarðargötu verði fjög- urra fasa Ijós með tilheyrandi fjölgun akreina. Göngubrú á Njarðargötu er á aðal- göngustíg sem liggur meðfram Hringbraut og greinist í sundur við enda brúarinnar í aðalstíg inn í Hljómskálagarð og í stíga sem liggja að Háskólanum og suður með Njarð- argötu. Brúin er sveigð í plani með 300 m radíus og í háboga yfir Njarðargötuna sem endar í 5% halla niður af hvorum enda. Heildarlengd brúarinnar er 76,3 m í fjórum höfum með lengsta haf 20,6 m langt. Gólfhæð í hæsta punkti er um 12,0 m en hindranaflötur Reykjavíkurflugvallar er þar í 15,5 m hæð og brúin því vel þar inn- an við. Göngubrýrnar tvær við Njarðargötu mynda eina heild og hafa sama form og út- lit. Öll landmótun norðan Hringbrautar miðar að því að hafa aflíðandi fláa og hafa lengdir brúnna nægilegar til að gefa skemmtilegt og létt útlit. Jafnframt því þá er ekki hætta á að sjónlínur ökumanna skerðist þegar þeir aka um þetta gatna- mótasvæði. Göngubrú á Hringbraut við Landspítala er á aðalgöngustíg sem liggur meðfram Hringbraut að norðan og áfram meðfram Hringbraut að sunnan að íþróttasvæði Vals. Þaðan liggur hann síðan áfram inn að Öskjuhlíð og í Nauthólsvík. Lóðamörk liggja nokkuð þétt upp við Hringbraut að sunnan og því lítið rými til að lenda brúnni. Landspítalamegin ganga rampar með 5% halla í báðar áttir frá brú- arendanum ásamt því að göngustígur fer einnig undir brúna. Brúin liggur í boga yfir Hringbraut með radíus 60 m en sveigist í 30 m boga að sunnanverðu og mætir landinu inn á hljóð- mön samhliða Hringbrautinni. Við enda brúarinnar eru tröppur niður á samsíða stíg. Þær eru hugsaðar til að stytta göngu- vegalengdir fyrir þá sem eru að fara inn á biðstöð strætisvagna eða inn í fyrirhugað hverfi sunnan Hringbrautar. Heildarlengd brúarinnar er því 85,8 m í fimm höfum og er lengsta hafið 23,5 m langt yfir syðri ak- braut Hringbrautar. Mynd 3 - Þversvið í göngubrýr á Hringbraut og Njarðargötu

x

Upp í vindinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Upp í vindinn
https://timarit.is/publication/1929

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.