Upp í vindinn - 01.05.2005, Qupperneq 12

Upp í vindinn - 01.05.2005, Qupperneq 12
...upp í vindinn Yfirbyggingin situr á legum á báðum endum og er haldið gagnvart láréttum kröftum við endastöpla með stálfestingum. Hreyfingar brúarinnar vegna hitabreytinga verða þannig að hún leggst inn í bogann þegar hún kólnar en út þegar hún hitnar. Hegðun brúarinnar gagnvart láréttum kröftum virðist vera góð og virðast ekki vera vandræði með eiginsveiflur í spíraln- um. Bæði er hafdeilingin hentug og einnig er þversniðið mjög vindustíft og þolir því vel ósamhverft álag. 2.5 Grundun Jarðtæknilegar aðstæður í brúarstæðinu eru þannig að um 4-5 m djúp mýri er ofan fUmhverfis- og skipulagssvið Reykjanesbæjar á jökulurð sem myndar þunnt lag ofan á berggrunninum. Undirstöður brúar á Hring- braut vestan Njarðargötu eru grundaðar að hluta til á um 6 m löngum staurum sem reknir eru niður í mýrina. Fjórir staurar eru undir hverri millisúlu, sex staurar undir endastöplinum, jafnframt eru undirstöður stigans grundaðar á staurum. Staurarnir eru steyptir með bergskó úr stáli á endan- um. Það er gert til að lágmarka rask í friðlandi í Vatnsmýri. Aðrar undirstöður sem eru við vegstæði Hringbrautar eru grundaðar á þjappaðri fyllingu. Undirstöður fyrir hinar tvær brýrnar eru grundaðar á þjappaðri fyllingu. 3 Göngubrú á Reykjanesbraut í Hafnarfirði Cöngubrú á Reykjanesbraut við Ásland í Hafnarfirði var byggð árið 2003 og er hluti af göngustíg sem tengir Áslandshverfi í Hafnarfirði við byggðina neðan við Reykja- nesbraut. Brúin var byggð sem hluti af færslu Reykjanesbrautar suður fyrir kirkju- garðinn í Hafnarfirði. Brúin er eftirspennt plötubrú með mjög sérstöku og ósamhverfu þversniði eins og sést á myndum 7 og 8. Yfirbygging brúar- innar er bein í plani og með jöfnum lang- halla. Öðrum megin myndar steypta yfir- byggingin handrið brúarinnar en hinu meg- in eru það lóðréttir teinar úr ryðfríu stáli. Brúin er 76,6 m í fjórum höfum með miðjuhöfin 18,5 m löng en endahöfin 14,6 m. Jafnframt teygir yfirbyggingin sig rúm- lega 5 m inn fyrir endastöplana. Endastöpl- ar brúarinnar eru steyptir og ganga inn í jarðvegsmanir, lögun endastöplanna fylgir lögun yfirbyggingarinnar. Hver millistöpull er úr tveimur steyptum súlum þar sem önnur er hallandi. Þær eru tengdar saman með steyptum vegg þar sem þær ná landi til að styrkja þær gagnvart árekstrarálagi. 4 Göngubrú á Reykjanesbraut við Stekkjarbakka Göngubrú á Reykjanesbraut við Stekkjar- bakka var byggð árið 2003 og er hluti af göngustíg sem tengir útivistarsvæði í Foss- vogsdal og Elliðaárdal saman. Brúin var byggð sem hluti af mislægum gatnamót- um Reykjanesbrautar og Stekkjarbakka og hefur nokkuð sterka samsvörun við tvær vegbrýr sem eru hluti þeirra gatnamóta og eru um 200 m frá göngubrúnni. Brúin er eftirspennt plötubrú með 450 mm þykku þversniði. Yfirbygging brúarinn- ar er bein í plani með háboga sem setur • | • ® umdrain Nýr standard t cjðljnidurjöllum Nú þurfa niðurföll ekki lengur að vera úti á miðju gólfi! Með Unidrain gólfniðurföllum getur þú staðsett niðurfallið út við vegg eða útvið horn. Auðveldar mjög flísalögn og vatnshalla vandamálið er úr sögunni. Glæsileg hönnun á niðurföllunum gerir Unidrain að draumalausn fyrir arkitekta og húsbyggjendur. ÆmflwA T€nGI ij 1 \ Smiðjuvegi 11-200 Kópavogur Sími: 564 1088 ■ Fax: 564 1089 • tengi.is 12

x

Upp í vindinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Upp í vindinn
https://timarit.is/publication/1929

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.