Upp í vindinn - 01.05.2005, Síða 22
...upp í vindinn
og tjónsvæði jarðskjálftanna er oftast af-
langt í norður-suður stefnu, þ.e. þvert á
jarðskjálftabeltið. Meiri háttar jarðskjálfta-
hrinur hafa gengið yfir svæðið frá austri til
vesturs á um það bil 45-112 ára fresti.
Mynd 1 sýnir dreifingu upptaka jarðskjálfta
á landinu tímabilið 1896-2000, sem höfðu
stærð yfir fjórum. Sýnir hún vel hvernig
aðaljarðskjálftasvæði landsins eru formuð.
Reykjanesskaginn (RSZ)
Skjálftasvæðin á Reykjanesskaga tengja
Suðurlandssvæðið við Reykjaneshrygginn
þvert yfir vesturgrein eldgosabeltisins.
Plötuskilin milli Evrópu-Asíu flekans og
Norður Ameríku flekans fylgja Miðatlants-
hafshryggnum og koma skilin á land við
Reykjanesið þar sem þau hliðrast til aust-
urs langs eftir skaganum og gegnum Suð-
urlandsskjálftasvæðið. Jarðskjálftar á
Reykjanesskaga eru sérstakir að því leyti að
þarna blandast saman plötuskilahreyfingar
og umbrot vegna eldvirkni. Suðurlands-
skjálftasvæðið er hins vegar frekar með
hreinum plötuskilahreyfingum án eldvirkni.
Jarðskjálftaupptök á Reykjanesskaga fylgja
nánast línulegu ferli sem er aðeins um 2
km breytt. Jarðskjálftaáhrif á höfuðborgar-
svæðinu eru bæði vegna skjálfta á Reykja-
nesskaga, einkum í Brennisteinsfjöllum og
við Sveifluháls um 25 km frá Reykjavík, svo
og vegna skjálfta sem eiga upptök sín vest-
ast á Suðurlandssvæðinu. Skjálftarnir á
Reykjanesskaga eru minni en á Suður-
landssvæðinu og eru tiltölulega grunnir
með upptakadýpi um 1-5 km. Er það lík-
lega vegna eldvirkninnar en sennilegt er að
spennusamþjöppun verði minni í heitu
grunnberginu. Þannig eru skjálftar á
Reykjanesskaga bæði háðir eldvirkni
(vúlkanskir skjálftar) og plötuskilahreyfing-
um. Töluverð skjálftavirkni hefur verið á
Reykjanesskaga síðstliðin 100 ár eða svo
en skjálftarnir hafa yfirleitt verið litlir.
Norðurlandssvæðið (NISZ)
Norðurlandssvæðið nær þvert yfir Kol-
beinseyjarhrygginn. Töluverð jarðskjálfta-
virkni er á um 150 km breiðu svæði frá
Melrakkasléttu til Vatnsness vestan Skaga-
fjarðar. Jarðskjálftaupptökin eru þó aðal-
lega í norðausturhluta svæðisins eins og
sést á mynd 1. Jarðskjálftafræðilegir eigin-
leikar svæðisins eru flóknir og tengjast ekki
plötuskilunum, sem hliðrast til baka til
vesturs á svæðinu um Tjörnesmisgengið,
né einstakri sprungumyndun. Jarðskjálftar
á þessum slóðum eiga oft upptök sín á
hafsbotni norður af landinu og valda því
ekki eins miklum áhrifum á landi.
Önnur svæði
Svokallaðir innplötuskjálftar, sem eiga upp-
tök sín fjarri plötuskilum flekanna, eru frek-
ar sjaldgæfir á íslandi. Þó hafa smáir jarð-
skjálftar mælst austur af landinu, og með-
alstórir jarðskjálftar hafa átt upptök sín í
Borgarfirði. Upptakavél slíkra skjálfta gefur
til kynna skúfhreyfingu og lóðrétta hreyf-
ingu sem stafar af mikilli láréttri streitu í
berginu. Slíkir jarðskjálftar hafa yfirleitt
ekki valdið neinu tjóni á mannvirkjum.
Skjálftinn í Hvítársíðu 1974 er þó undan-
tekning en nokkrar skemmdir urðu á hús-
um nálægt upptökum hans.
Aðferðafræði
Mat á mestu yfirborðshröðun, sem vænta
má á tilteknum stað, t.d. á 475 ára fresti,
getur farið fram með ýmsum hætti. Þar
sem viðamikil gögn hröðunarmælinga eru
til staðar má einfaldlega ná hágildunum
beint út úr gagnasafninu. Á íslandi eru slík-
ar upplýsingar ekki fyrir hendi nema í litl-
um mæli. Því var farin sú leið að reikna yf-
irborðshröðunina í upptökum jarðskjálft-
ans á grundvelli upptakarófs Brune's og
nota síðan dvínunarlíkanið til þess að fá yf-
irborðshröðunina í hnútpunktum netsins,
TRÉSMÍÐAVERKSTÆÐI
Eyravegi 51 • Selfossi
Sími 482 1840 • www.selós.is
[8]. Brune rófið gefur þannig meðalyfir-
borðshröðunina, en með rannsóknum á
mældum hröðunarferlum er hægt að fá
gott mat á svokölluðum toppstuðli p.
Þannig verður yfirborðshröðunin á hverjum
stað.
a„=a(t) *p=p j\A(u>)\2d(u>)
Þar sem hágildi yfirborðshröðunarinnar
er fengið með því að margfalda meðalgildi
hennar með toppstuðlinum p. A(w) er af-
myndað róf Brune's, þar sem búið er að
taka tillit til dvínunarinnar og dreifingu
jarðskjálftabylgnanna, [11]. Þessi aðferða-
fræði hefur verið þróuð af Ragnari Sig-
björnssyni o.fl. fyrir Suðurlandsskjálfta-
svæðið og var einnig notuð af Júlíusi Sól-
nes o.fl. við mat á jarðskjálftaáhættu á höf-
uðborgarsvæðinu, [6], [7].
Með því að notast við hlutmengi úr
jarðskjálftalistunum er hægt að reikna
væntanlega hröðun í skjálftum framtíðar
og hröðunina í fyrri jarðskjálftum í hverjum
hnútpunkti netsins. Þannig fæst röð af
hröðunargildum í hverjum hnútpunkti sem
hægt er að nota til þess að finna viktölur
hröðunar miðað við ákveðin endurkomu-
tíma. Líkindadreifingu hröðunargildanna
má skilgreina á eftirfarandi hátt.
FA(a) = P [ maxtkerA(tk)> a]
Þar sem vísitalan k er númer atburðar,
tk er tími hans, þ.e. ártal hans, Ap) er hröð-
unargildið og a er raunbreyta. Dreifingin er
síðan metin út frá hröðunargildunum með
því að nota eftirfarandi vísbendingarfall
U — | 1 Aj (4) - a
J L 0 elsewhere
Samtök iðnaðarins
22