Upp í vindinn - 01.05.2005, Page 24
...upp í vindinn
með hermdum framtíðaratburðum, hefur
líkindafræðilegt jarðskjálftaáhættukort fyrir
landið í heild sinni, sem sýnir hágildi jarð-
skjálftahröðunargilda á 475 ára fresti, verið
unnið. Þeir eiginleikar jarðskjálfta, sem að-
allega liggja að baki kortsins, eru upptaka-
svæði og stærð jarðskjálftanna svo og dvín-
un jarðskjálftabylgnanna. Dvínunareigin-
leikar jarðskjálfta á Suðurlandsskjálfta-
svæðinu hafa verið notaðir fyrir allt landið
þar sem aðrar og nákvæmari upplýsingar
liggja ekki fyrir. Framlenging jarðskjálfta-
listanna með hermdum framtíðarskjálftum
er talin mikilvæg til þess að koma í veg fyr-
ir að einstakir jarðskjálftaatburðir skekki
myndina. Þannig fæst stöðugra kort með
betri skírskotun til hinnar raunverulegu
jarðskjálftaáhættu. 475 ára hröðunarkort-
ið virðist samræmast vel þekktum jarð-
skjálftaupptökum og gefa áhættumynd,
sem fellur vel að tilfinningu manna fyrir
hinni raunverulegu jarðskjálftaáhættu.
Með því að nota þær hröðunargilda-
upplýsingar, sem þannig liggja fyrir í hverj-
um hnútpunkti kortsins, er hægt að rekja
sig til baka og framleiða sundurgreiningar-
kort, sem geta verið grundvöllur fyrir
hermun jarðskjálftahröðunar á tilteknum
byggingarstað. í nútímajarðskjálftastöðl-
um, svo sem Eurocode 8, er meiri og meiri
áhersla lögð á sveiflugreiningu með tíma-
röðum sem líkjast raunverulegum jarð-
skjálftum. Þjóðarskjölin þurfa því að sýna
sundurgreiningarkort til þess að auðvelda
hermun slíkra tímaraða. Þeir sem vilja
nota kortin í þessari grein geta nálgast þau
á heimasíðu Verkfræðistofnunar H.í.
Heímildir
1. Tryggvason ES, Thoroddsen S & Thorar-
insson S. „Report on Earthquake Risk in
lceland (in lcelandic), Bull. Assoc.
Chart. Engrs. in lceland", 43 (1-9),
1959.
2. Solnes J. „The Seismicity and Earthquake
Hazard in lceland", Reunión Unión
Geofísica Mexicana, Puerto Vallarta,
1991.
3. Sigbjörnsson R, Baldvinsson Gl. &
Thrainsson H. „A stochastic simulation
approach for assessment of seismic
hazard maps in „European Seismic
Design Practice", Elnashai, A. (Ed.),
Balkema, Rotterdam, 1995.
4. Sigbjörnsson R et al. „Earthquakes in
South lceland-17lh and 21sl June 2000"
(in lcelandic), Earthquake Engineering
Research Centre, University of lceland,
Report No. 00001, 2000.
5. Ambraseys NN & Sigbjörnsson R. „Re-
Appraisal of the Seismicity of lceland".
Polytechnica-Engineering Seismology,
No. 3, Earthquake Engineering Rese-
arch Centre, University of lceland,
2000.
6. Solnes J, Sigbjörnsson R & Eliasson J.
„Earthquake Hazard Mapping and Zon-
ing of Reykjavik", 12ECEE, 2002.
7. Júlíus Sólnes, Ragnar Sigbjörnsson &
Jónas Elíasson, „Jarðskjálftaáhættukort
af Reykjavíkursvæðinu", Upp í vindinn,
22. árgangur 2003
8. Olafsson S & Sigbjörnsson R „Attenu-
ation of Strong Ground Acceleration: A
Study of the South lceland Earthquakes
2000", 12ECEE, London, 2002.
9. Eurocode 8: Design of structures for
earthquake resistance-Part 1: General
rules, Seismic action and rules for
buildings, CEN, December 2003.
10. Solnes J, Sigbjörnsson R & Eliasson J.
„Probabilistic Seismic Hazard Mapping
of lceland", 13WCEE, Vancouver 2004
11. Brune JN. „Tectonic stress and the
spectra of seismic shear waves from
earthquakes", Journal of Geophysical
Research, 75 (4997-5009), 1970.
Q^íða leynist auður íiðrum jarðar
við sækjum hann fyrirþig
Borum eftír heitu og köldu vatni,
gufu, gasi og gulli.
Rannsókna- og vinnsluholur
í 1100 m dýpi.
Ræktiinarsamband Flóa og Skeiða ehf.
Gagnheíði 35, 800 Selfoss, Sími 482-3500 Fax 482-2425
www.raekto.is - raekto@raekto.is
RAK.tVMAlUAMl8AMD
FLÓA OC fKÍIÐA
24