Upp í vindinn - 01.05.2005, Blaðsíða 46
...upp í vindinn
mælinganna voru að hröðunarneminn var
fyrirferðarmikill og takmarkaði það stað-
setningu nemans. Næsta kynslóð nema frá
Kine ehf er mun minni og býður upp á fleiri
staðsetningar en gamli neminn gerði. Vel
kemur til greina að vera með sérstakan
mælihnakk þar sem nemanum er komið
fyrir í sjálfum hnakknum og þá helst undir
miðju sæti knapa. Fjarskiptasamband var
heldur ekki alltaf gott og því þurfti oft að
endurtaka mælingu til að skráningin gengi
upp. Loks væri æskilegt að þróa búnað
þannig að knapi gæti sjálfur sett mælingu
af stað þegar hann finnur að hestur geng-
ur eðlilega.
Það er mat skýrsluhöfunda að ýmsar
vísbendingar úr þessu forverkefni gefi til
kynna að hægt sé með mælingum af þessu
tagi að fá mat á þýðgengi hesta. Þetta er þó
ekki fullreynt. í framhaldsverkefni þyrfti að
leggja áherslu á að mæla viðurkennda og
dæmda gæðinga þar sem fyrirfram væri
búið að raða þeim niður eftir ganggæðum.
Ef þetta gengi eftir væri síðan hægt að búa
til verklýsingu á gangprófi sem endaði með
gangeinkunn. Fyrir utan það að bera sam-
an mismunandi íslenska hesta væri einnig
hægt með mælingunum að bera saman
þýðgengi íslenska hestsins við erlendar
hestategundir. Líklegt er að íslenski hestur-
inn kæmi vel út úr slíkum samanburði og
það mætti svo nota í markaðskynningu á
honum. Loks mætti hugsa sér að gang-
mæling væri hluti af gæðaskýrslu fyrir
hesta sem verið er að flytja úr landi.
Ljóst er að það eru ýmsir möguleikar í
þessu verkefni, en stóra spurningin er hvort
áhugi sé fyrir hendi meðal hestamanna að
halda þessu áfram.
Heimildir
[1] ISO-2631 International Standard - Evalu-
ation of human exposure to whole-body
vibration - Part 2: Continuous and
shock-induced vibration in buildings (1-
80 Hz). First edition 1989-02-15.
[2] Bjarni Bessason, Inga Rut Hjaltadóttir og
Baldur Þorgilsson, Mælingar á þýðgengi
reiðhesta, Skýrsla númer VHI-01-2004,
Verkfræðistofnun Háskóla íslands,
Reykavík 2004.
Sslgstisgerðbt Goa-Liitda ehf.
Bsjarhraunl 24.
Simi: 555-3464, £>x : 565-2660
Tími - (s)
Mynd 7 - Samanburður á tölti í Gná og Sverði. Knapi B (95 kg).
0 4 8 12 16 20
Tíðni - (Hz)
Mynd 8 - Samanburður á aflrófum frá tölti í Gná og Sverði. Knapi B (95 kg). Rófin eru
reiknuð út frá tímaröðunum á mynd 7.
Tími - (s)
Mynd 9 - Samanburður á knöpum A og B á Gná. Gangtegundin er tölt.
46