Upp í vindinn - 01.05.2005, Qupperneq 49
...upp í vindinn
Mynd 1: Ein fjögurra settjarna í Elliðaárdal.
Mynd 2: Staðsetning nýju tjarnanna og afrennslissvæðið.
fors, köfnunarefnis og vegsalts nokkuð lakari.
Hreinsun olíuefna er hins vegar um og yfir
90%.
Mikil vinna hefur verið lögð I að aðlaga
sænskar og þýskar hönnunarforsendur að að-
stæðum hér á landi. Úrkomugögn sem safn-
að hefur verið af Gatnamálastofu til margra
ára hafa verið notuð til að finna út eðlismun
og stærðarmun úrkomu hérlendis og í þess-
um viðmiðunarlöndum. Niðurstaðan er m.a.
sú að hérlendis getum við komist af með
minni tjarnir án þess að það komi niður á
hreinsivirkni þeirra.
Mengunarhætta
Óhreinindi í ofanvatni eru af mismunandi
toga og uppruna. Bæði er um að ræða óupp-
leyst og uppleyst efni sem rekja má til yfir-
borðs- og snertiflatar úrkomu við malbik, þak-
járn o.s.frv. Nokkuð er um aðskotahluti og
rusl sem berst í settjarnir.
Vegslit, gúmmí, sót, málningarflögur, olíu-
dropar, fokryk, sandur og möl, bremsuklossar
og riðvörn bíla eru meðal efnaflokka sem ber-
ast í ofanvatnskerfi og inn I tjarnir. Um mjög
litlar agnir getur verið að ræða. Talið er að til-
tölulega takmarkaður hluti efnamengunar sé
á formi frjálsra jóna, þess í stað eru þær meira
bundnar burðarögnum. Þessi massi sem sest
til botns í tjörnum, er því slammkenndur.
Flotefni, s.s. olía og fita, geta verið bundin ryki
og fínsandi og myndað froðukennt yfirborð.
Afrennslissvæði tjarnanna við Sævarhöfða
er nokkuð sérstakt fyrir þær sakir að umferð
þungra bíla er nokkuð mikil, bæði á Vestur-
landsvegi og vegna iðnaðarstarfsemi í Höfða-
hverfi. Hætta á mengunarslysum er því nokk-
ur. Einnig er nokkur mengun sem stafar af
jarðefnaiðnaði á svæðinu, í skolvatni þaðan er
mikið af fínefnum sem grugga vatnið.
Hönnun tjarnanna við Sævarhöfða
í tjamirnar rennur vatn frá um 120 ha svæði,
sjá mynd 2.
Um 20% svæðisins er íbúabyggð, 70% er
iðnaðarsvæði og um 10% svæði sem tengist
Vesturlandsvegi. Til að meta hve mikið vatn
getur borist í tjarnirnar var notast við svokall-
aða M5-aðferð til að meta úrkomumagn og
svæðum innan afrennslissvæðisins síðan
gefnir svokallaðir afrennslisstuðlar. Þessir
stuðlar gefa til kynna hve mikill hluti ofan-
vatns skilar sér í fráveitukerfið. Notast var við
stuðlana 0,1 fyrir grasi vaxið land, 0,35 fyrir
íbúabyggð en 0,7 fyrir iðnaðarsvæði. M5-að-
ferðin byggir á úrkomugögnum af svæðinu og
gefur samband úrkomumagns, endurkomu-
tíma og varanda regnskúra. Við hönnun tjarn-
anna var miðað við að þær virki eðlilega þótt
úrkoman sé sú mesta á 5 ára tímabili.
Ákveðið var að tjarnirnar sem taka við
vatninu yrðu alls fjórar talsins. Ástæðan er sú
að þörf var talin á tvískiptingu tjarna vegna
þeirrar mengunar sem til staðar er á svæðinu.
Þá er um þriðjungur tjarnarrýmisins í svokall-
aðri fortjörn þar sem megnið af menguninni
lendir en vatnið berst síðan í aðaltjörnina sem
er nokkru stærri og hreinsast betur þar. Með
þessu fyrirkomulagi sparast vinna við hreins-
un tjarnanna þar sem yfirleitt nægir að
hreinsa aðeins fortjörnina. Einnig er mun auð-
veldara viðfangs að fanga olíu frá slysi í for-
49