Upp í vindinn - 01.05.2017, Page 21

Upp í vindinn - 01.05.2017, Page 21
Háskóli íslands Relay computer Þegar ég segi að ferlið hafl verið tvískipt þá meina ég að á meðan þvottaferli- nu stóð, þá var engin metanframleiðsla í gangi, enda var engum metanmyndan- di bakteríum bætt í ferflð. Lífrænt niðurbrot hófst engu að síður en bara íyrsta og annað stigið af íjórum í loftfirrtu niðurbroti (1. Hydrolysis, 2. Acidogenesis, 3. Acetogenesis og 4. Methanogenesis). Framkvæmdar voru flmm tilraunir við mismunandi hitastig og mislengi (frá 4 upp í 10 daga). Óflokkaður og ferskur heimilisúrgangur var sóttur í móttökustöð SORPU í Gufunesi (tvö smekkfull flskikör), hann keyrður upp á Álfsnes og þar mokað ofan í þvottavélina. Tækin voru síðan undirbúin og ferlið keyrt sjálfvirkt í ákveðinn tíma. Sýni voru tekin reglulega og þau greind með tilliti til efnafræðilegrar súrefnisþarfar (e. chemical oxygen demand) og ammoníaks-köfnunarefns (e. ammonical nitrogen, NH3-N) en þessi tvö efni gáfu vísbendingar um hvemig niðurbrot lífræns efnis gekk og hversu langt það var komið á mismrmandi tímum. í öllum tilraununum vora svo tekin sýni sem voru sett í metangerðarpróf þar sem þvottalegur var settur í litlar, lofttæmdar 500 ml flöskur með kúamykju og inní 37”C heitan hitaskáp. Við þær aðstæður myndast metangas sem var mælt og séð hvemig mismunandi þvottaferli höfðu áhrif á magn metans sem hægt var að búa til úr þvottaleginum (sem aftur var bara uppleyst h'fræn efni úr hei- milisúrganginum). Þama kom í ljós að ég hafði ekki sinnt hreinlæti nægilega vel, mokandi msli og kúamykju daginn út og daginn inn, enda var ég rúmliggjandi í 2 vikur í lok verkefnisins, eftir líklegt smit á rannsóknastofunni. Mæli ekki með því. Niðurstöðumar vora svo kynntar leiðbeinendum í Sviss og SORPU og er líklegt að áframhald verði á þessum tilraunum þegar bygging gas- og jarðgerðarstöð- var fer í gang og undirbúningur fýrir rekstur hennar kemst á skrið. Áætlað er að stöðin verði komin í gagnið árið 2018 og mun hún þá að öllum flkindum framleiða tvöfalt það magn af metani sem hægt er að safna úr urðunarstaðnum í dag, sem mun duga til að reka 8000 bifreiðar á ári. Aldrei hefur msl verið jafn áhugavert og núna og er ljóst að þekkingar í úrgangsmálum sem og fleiri grein- um umhverfisverkfræðinnar er sífeflt meira óskað. 21

x

Upp í vindinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Upp í vindinn
https://timarit.is/publication/1929

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.