Upp í vindinn - 01.05.2017, Page 63

Upp í vindinn - 01.05.2017, Page 63
Háskóli íslands Þann 11. maí hittust 17 spenntir nemendur á Keflavíkurflugvelli á leið í þriggja vikna ferðalag. Förinni var heitið til Suður-Kóreu í námsferð og síðan til Víetnam og Tælands í útskriftarferð. Ferðin hófst á flugvellinum í Seoui þar senr Guðmundur Freyr Úlfarsson tók á móti hópnum og fór með okkur á morgunverðarstað sem kom nokkrum á óvart. Til að mynda töldu greinarhöfundar sig panta nautakjöt en fengu tofusúpu og heilan grillaðan fisk. í Suður-Kóreu var þéttskipuð dagskrá en á þeirri viku sem dvalið var þar fórum við í sex vísindaferðir auk nokkurra hefðbundinna túristaferða sem Guðmundur Freyr skipulagði. Ferðast var milli staða í lestum og í pínulítilli rútu með innbyg- gðu karókí. Fyrsta daginn var farið í Expressway Transportation Center, Umferðarmiðstöð Suður-Kóreu sem hefur yfirumsjón með allri umferð landsins. Vegakerfið í Suður-Kóreu er engan veginn sambærilegt við vegakerfið heima á íslandi, en þar er m.a. unnið að því að byggja upp net hraðbrauta sem á að tengja alla ibúa land- sins við hraðbraut. Einnig eru fluttar umferðarfréttir nokkur hundruð sinnum á dag, bæði í útvarpi og sjónvarpi til að koma í veg fyrir umferðarteppur. Einnig heimsóttum við stærstu sjávarfallavirkjun heims, Ansan Sihwaho Tidal Power Plant. Kynningin þar var líklega hugsuð fyrir börn en var engu að síður afar fræðandi og skemmtileg. Næstu heimsóknir voru í Korean Research Institute for Human Settlements og ITS Center for Anyang City. í KRIHS fræddumst við um uppbyggingu vegak- erfisins í Suður-Kóreu allt frá lokum seinni heimsstyrjaldar til dagsins í dag. Þá hélt Guðmundur Freyr fyrirlestur um vegakerfið á íslandi þar sem hann upplýs- ti meðal annars um að á íslandi er enginn vegur sem flokkast sem „freeway“, Kóreumönnum til mikillar undrunar. í ITS Center í Anyang er verið að þróa neyðarapp sem á að auka öryggi íbúa borgarinnar, koma í veg fyrir glæpi og auka líkurnar á að gerandinn náist. 63

x

Upp í vindinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Upp í vindinn
https://timarit.is/publication/1929

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.