Upp í vindinn - 01.05.2018, Blaðsíða 29
barnavagn og loftinntakið fest á utanáliggjandi stöng í
innöndunarhæð (ca. 160 cm frá jörðu) m.v. meðalhæð íslendinga.
Umhverfisaðstæður á gönguleið voru skráðar niður, s.s. magn og
samsetning umferðar, lyktarmengun, nálægð göngustígs við
umferð, undirgöng, þröngar götur (götugljúfur). Vindhraði og stefna
voru mæld nokkrum sinnum yfir hvert mælitímabil með Testo 440
handmæli.
Mynd I Mæliuppsetning og þverfræðilegur hópur nema íumhverfis- og
byggingarverkfræði, efnaverkfræði, véla- og iðnaðarverkfræði.
Niðurstöður Meðalgildi sóts á pari við stórborgir
Sót mældist að meðaltali um 1 mg/m3 í mildu haustveðri með
breytilegum vindi. Þetta gildi er tvöfalt hærra en hermt vegið
meðaltal í 120 þúsund manna borginni Umeá í norður Svíþjóð, sem
hefur helmingi færri bíla en Reykjavík (Segersson ofl. 2017). Hæsta
meðaltal sóts (4,2 mg/m3) mælt meðfram göngubraut umferðar-
megin við Miklubraut frá brúnni við Skeiðarvog að Framvellinum í
morgunumferð í logni. Þetta gildi er um þriðjungi hærra en mældist
meðal gangandi vegfarenda í London borg með 8,8 millj. íbúa (3,1
mg/m3; Rivas o.fl. 2017).
Borgaraðstæður
Sót hækkaði að jafnaði í nálægð við gatnamót þar sem umferð
hægir á sér (6,3 mg/m3, Mynd 2). Mest sótmengun mældist á 130 m
Sot í'Reykjaví'k
29