Upp í vindinn - 01.05.2018, Blaðsíða 72
Snjoi' og leysingar i þettbyíi -
undirstaða fyrir farsaala hönnun og
reksfur fraveitukerfa
AndriRafn Yeoman, Arnar Snær Ragnarsson, Bjarni Halldórsson, Bergljót
Hjartardóttir, Þorbjörg Anna Sigurbjörnsdóttir, Hrund ÓlöfAndradóttir
Inngangur Borgvæðing gjörbreytir náttúrulegri hringrás vatns. Gegndræp
græn svæði hopa fyrir ógegndræpum byggingarflötum, eins og
húsum og götum, með þeim afleiðingum að meira yfirborðsvatn, sk.
ofanvatn, myndast sem getur í verstum tilfellum flætt í hús með
tilheyrandi tjóni. Fráveitur miðla slíkri flóðahættu með því að færa
ofanvatn frá uppsprettu í viðtaka (sjó). Hönnun slíkra kerfa byggist á
stuttum, snörpum sumarskúrum sem valda skyndiflóðum. í köldu
loftslagi er langvarandi regn á snjó og snjóbráð ekki síður líkleg til að
valda ofanflóði í þéttbýli, eins og kom bersýnilega fram sl. febrúar
þegar slegið var met í fjölda útkalla vegna vatnsflaums í kjölfar
vetrarlægðar sem reið yfir höfuðborgina. Einungis tveimur dögum á
undan hafði minni lægð hamlað umferð þar sem krapi stíflaði mörg
götuniðurföll.
Fáar rannsóknir hafa verið gerðar á snjóbráð og leysingum í þéttbýli
í heiminum. Vitað er að snjór bráðnar mishratt eftir eiginleikum hans
eins ogt.d. þjöppun og mengun (Moghadas 2016). Borgarumhverfið
er mjög misleitt og aðstæður mismunandi á milli staða. Því er
mikilvægt að mæla snjó í þéttbýli til að stuðla að farsælum lífsferli
bæði hefðbundinna neðanjarðar ofanvatnskerfa svo og blágrænna
lausna sem miðla vatni á yfirborðinu.
Til að fylgja eftir stefnu Háskóla íslands um samtvinningu náms og
rannsókna, unnu nemendur í námskeiðinu UMV602M Fráveitur og
skólphreinsun rannsókn sl. febrúar, þar sem markmiðið var að skilja
betur eiginleika snjós og snjóbráðar í höfuðborginni. Hér verður
greint stuttlega frá nokkrum niðurstöðum rannsóknarinnar.
Nemendur framkvæmdu vettvangsmælingar og greindu gögn frá
Veðurstofu íslands og Orkuveitu Reykjavíkur.
I íh skipti fi'OStS og Veðurfar á Islandi er mjög breytilegt frá degi til dags en einnig milli
þýðu árstíða og ára. Það veldur því að miklar sveiflur eru á lofthita og
einkennandi fyrir Reykjavík eru tíð skipti á milli frost og þíðu. Mynd 1
sýnir nærmynd af lofthita í Grafarholtinu frá október 2008 og út
...upp í'vindinn
72