Upp í vindinn - 01.05.2018, Blaðsíða 18
Tafla 3 sýnir þær breytur sem höfðu marktæk áhrif á að svarendur
völdu bætt leiðarkerfi sem mikilvæga endurbót hjá Strætó. íbúar í
108 Reykjavík og konur voru líklegri til að velja bætt leiðakerfi. Þeir
sem búa þar sem ein stoppistöð er í göngufæri við heimili voru
einnig líklegri til að vilja bætt leiðarkerfi ásamt þeim sem eru yfir 61
mínútu að fara með Strætó að vinnu/skóla/annað. Fólk vill geta
komist hratt og greiðlega á milli staða.
Áhugavert er að sjá að þeir sem nota ekki Strætó eru ólíklegri til að
hafa valið bætt leiðarkerfi. Einnig þeir sem hafa fimm eða fleiri
stoppistöðvar við vinnu/skóla/annað eru ólíklegri til að hafa valið
bætt leiðarkerfi.
Ólíklegri til að velja bætt leiðarkerfi Líklegri til að velja bætt leiðarkerfi
• Notar ekki Strætó • Kvenkyn
• Meiraen 31 mín að keyratil vinnu/ • Ein stoppistöð við heimili
skóla/annað • Undir 7 mín að ganga að stoppistöð
• Tekjuryfir950ámánuði • Býr í 108 Rvk.
• 18-22 ára • Meiraen 61 mín meðStrætó að
• Fimm eða fleiri stoppistöðvar við vinnu/skóla/annað vinnu/skóla/annað
Tafla 3 Samantekt yfírþær breytur sem höfðu marktæk áhrífá val ábetra leiðarkerfí.
Tafla 4 sýnir þær breytur sem höfðu marktæk áhrif á að svarendur
völdu ódýrara fargjald sem mikilvæga endurbót hjá Strætó.
Áhugavert er að sjá að þeir sem búa á Suðurlandi eru líklegri til að
hafa valið ódýrara fargjald. Einnig þeir sem eru 31 mínútu eða lengur
að keyra frá heimili að vinnu/skóla/annað. Um 47,2% þeirra sem eru
31 mínútu eða lengur að keyra til vinnu/skóla/annað eru svarendur
sem búa á Reykjanesi, á Selfossi og í nágrenni, á Akranesi og í
Borgarnesi. Fargjald er hærra á þessum svæðum þegar ferðast er
til og frá höfuðborgarsvæðinu. Þessar niðurstöður gefa til kynna að
íbúar sveitarfélaga í grennd við höfuðborgarsvæðið vilja borga
lægra fargjald hjá Strætó. Það kostar fjóra farmiða að fara frá
höfuðborgarsvæðinu til Selfoss, tvo farmiða til Akraness og Ijóra
farmiða til að fara á Reykjanesið. Hugsanlega væri hægt að auka
fjölda þeirra sem nota Strætó á þessum svæðum með því að lækka
fargjaldið. Það vekur nokkra furðu að það kostar einungis tvo
farmiða að fara á Akranes, en fjóra farmiða til að fara á Selfoss.
Samkvæmt heimasíðu Já.is eru um 51,9 km frá Mjódd að Selfossi.
Frá Mjódd að Akranesi eru um 43,9 km og 44,7 km að Reykjanesbæ.
Það er býsna athyglisvert hversu mikill verðmunur er á fargjaldi milli
þessara svæða þegar mesti munur á vegalengd er rétt um 8 km og
...upp 'vindinn
18