Upp í vindinn - 01.05.2018, Blaðsíða 38
á morgunfundi til að leggja áherslu á öryggismál, fara yfir verk-
áætlanir með starfsmönnum og undirverktökum, ásamt því að fara
yfirverkefni dagsins, að það hafi haft mikil áhrif áframgangverksins.
Að hengja upp áætlanir á kaffistofu svo allir sjái og fara yfir þær
hefur áhrif, þótt flestir hafi verið á því að þær hafi verið of bjartsýnar.
Gott var þó að setja markið hátt og vinna að því. í þessu verki
byrjuðum við að nota verkefnastjórnunarkerfið Ajour. Við teljum
það vera alveg nauðsynlegt að nota slíkt verkumsjónarkerfi í
verkefnum sem þessu þar sem umfang er mikið og flækjustig hátt
og það sé þróun sem ná mun til flestra verkefna í framtíðinni.
Að verkstjórar hafi aðgang að nýjustu teikningum í skýi og þar af
leiðandi í spjaldtölvu eða síma og noti gátlista við vinnu sína í verkinu,
er mjög mikilvægt. Innri úttektir verða mun markvissari og mistök
færri. Verkstjórarnir áttu mjög auðvelt með að læra á kerfið og gera
þessar úttektir. Teikningarnar eru aðgengilegar á verkefnavefnum,
hvar sem er. Teljum við það óþarfi að prenta út teikningar lengur því
allir skoða þær í sínum símum eða tölvum, enda var svo komið í
seinni hluta verksins var varla litið á útprentaðar teikningar lengur.
Það hefði verið hægt að hætta að prenta teikningar og gera
vinnustaðinn meira pappírslausan. Allar úttektir fóru fram á
rafrænan hátt í áföngum 3 til 9 var nánast ekki notaður pappír í það.
Það má því segja að reynt hafi verið í þessu verkefni í fyrsta skipti að
stefna að pappírslausum verkstað, eins og stefna ætti að í öllum
verkum, þegar allar teikningar, úttektir og samskipti eru orðin
rafræn í verkefnastjórnunarkerfi.
Mynd 5 Áfangi2í vinnslu, áfanga 1 lokið.
...upp í'vindinn
38