Upp í vindinn - 01.05.2018, Blaðsíða 83
Lifhreinsun
Þatttaka Verkis
i jarðvegs-
mengunarmalum
ólífrænn haugur efnis sem þarf að farga á viðeigandi hátt þannig að
umhverfið beri ekki skaða af. Þetta getur verið kostnaðarsöm og
umfangsmikil aðferð og oft á tíðum í raun bara tilfærsla á vanda-
málinu.
Lífhreinsun er aðeins hægt að nota á lífræna mengun og má þar
nefna jarðveg mengaðan af olíuefnum, rokgjörnum og þrávirkum
lífrænum efnum. Er þetta talin vera umhverfisvænasta hreinsunar-
aðferðin. Ekki þarf að flytja jarðveginn til og ef vel tekst til er
lokaafurðin ómengaður jarðvegur. Lífhreinsun gengur í megin
dráttum út á það að gera lífsskilyrði örvera í jarðvegi sem best
þannig að þær geti nýtt sér lífrænu mengunarefnin sem fæðu.
Lífskilyrðin eru t.d. örvuð með því að dæla súrefnisríku lofti inn í
jarðveginn og stilla raka og sýrustig með vökvun, áburði og kölkun
en örverur starfa allajafna best í jarðvegi með sýrustig á bilinu pH
5,5 til 7. Einn af ókostum þessarar aðferðar er að hún er tímafrek og
getur tekur allt frá einu ári upp í 3 ár. Þessi aðferð hefur ekki verið
notuð úti í mörkinni á íslandi svo vitað sé en tilraunir hafa verið
gerðar með lífhreinsun á íslenskum jarðvegi inni á rannsóknastofu.1
Ekki hefur verið tekin upp reglugerð um viðmiðunarmörk fyrir
þungmálma og þrávirk lífræn efni í jarðvegi á Islandi. Umhverfis-
stofnun hefur þó gefið út leiðbeiningar um meðhöndlun olíumengaðs
jarðvegs þar sem er að finna tillögu að efri og neðri mörkum fyrir
olíumengaðan jarðveg í íbúabyggð/náttúruvernd, iðnarsvæði/svæði
utan byggða og fyrir viðkvæm grunnvatnssvæði.2
Reglugerðir um ákveðin mörk fyrir þungmálma og þrávirk lífræn
efni er þó að finna í nágrannaríkjum í Evrópu en erfitt getur reynst
að samnýta þau hér á íslandi þar sem jarðvegur hér á landi er
frábrugðinn jarðvegi meginlandsins. Er það helst vegna þess að
jarðvegur hér á landi er af basískum uppruna en basalt inniheldur
allajafna hærra hlutfa.ll málma samanborið við jarðveg mynduðum
úr öðru móðurefni.
Sem dæmi má nefna að í jarðskorpunni er meðalstyrkur kadmíums
(Cd) 0,1 mg/kg og í basalti 0,15 mg/kg. í íslensku bergi er styrkurinn
á bilinu 0,2-0,4 mg/kg og má því segja að grunngildi fyrir kadmíum
sér hátt hér á landi miðað við önnur lönd. Rannsóknir hafa sýnt að
Cd í íslenskum jarðvegi sé á breiðu bili og við náttúrulegar aðstæður
(ómengaður jarðvegur) hefur mælst styrkur fyrir ofan forvarnagildi
Evrópu.3
83
Jarðvegsmengun og tengsl hennar við grunnvatnsmengun