Upp í vindinn - 01.05.2018, Blaðsíða 59
PIR einingar uppfylla strangar kröfur um yfirborðsflokk, sumar
uppfylla flokk 1 (B-s1,d0, skv. ÍST EN 13501-1 [2]) en aðrar eru með
meiri reykmyndun (B-s2,d0). Prófanir til að kanna slíkan
yfirborðsflokk eru þó gerðar í smáum skala eins og hefur verið
fjallað um hér, og gefa því ekki fullkomna mynd af því hvernig efnin
hegða sér í raunverulegum bruna, á stærri skala.
Brunatæknilega má skipta áhrifum samlokueininga með brennan-
legri einangrun á brunaöryggi upp í tvö mismunandi tímaskeið.
Annars vegar tendrun bruna og brunaþróun í upphafi þegar rýming
þarf að eiga sér stað, og hins vegar síðari stig bruna þegar þættir
eins og slökkvistörf, eignavernd og sambrunahætta milli brunahólfa
og bygginga skipta mestu máli.
Við prófanir og raunbruna í byggingum með brennanlegum
samlokueiningum hefur komið í Ijós að á upphafsstigum bruna hefur
einangrunin ekki mikil áhrif vegna stályfirborðsins sem ver hana
fyrir beinni snertingu við utanaðkomandi hita/loga. En á síðari
stigum bruna losnar límingin milli stálplötunnar og einangrunar og
eldur kemst að einangruninni, sem fer þá að brenna, valda aukinni
reykmyndun og stytta tímann þar til yfirtendrun á sér stað. [5]
Áhrifin eru mismunandi eftir tegundum einangrunar. Ef um er að
ræða PIR einangrunarkjarna þá kolast einangrunin og takmarkar
þannig að einhverju leyti eldútbreiðslu, samanborið við aðrar
tegundir plasteinangrunar.
Samlokueiningar með steinullareinangrun hafa langbestu bruna-
eiginleikana, en hafa ekki eins gott einangrunargildi og eru þyngri.
Því er oft fýsilegt að nota einingar með plasteinangrun, en þá þarf
að taka sérstakt tillit til brunavarna. Ef einingar eru brennanlegar
eykst óvissan varðandi hegðun þeirra við bruna og afleiðingar geta
orðið aðrar en smáskala prófanir hafa gefið til kynna. Hægt er að
beita brunavörnum sem takmarka hitastig og takmarka þá um leið
áhrif brennanlegra eininga á brunaþróun í byggingu, s.s. reykræsingu
eða vatnsúðakerfi. Taka þarf tillit til starfsemi og brunaálags í
hönnuninni, með brunaálagi er átt við það magn af brennanlegum
efnum sem er til staðar. Mikilvægt er að frágangur á samskeytum
og úrtökum fyrir lagnir o.þ.h. sé með fullnægjandi hætti þannig að
einangrun sé ekki sýnileg eða óvarin fyrir eldi.
Einnig eru til þynnri einingar sem byggðar eru upp með sama hætti
nema með álkápu og þynnri einangrunarkjarna. Þær eru ætlaðar
sem regnhlíf eða veðurkápa utan á byggingar. Slíkar klæðningar má
50
Brennanlegar utanhussklæðningar