Upp í vindinn - 01.05.2018, Page 58
Brennanleiki ystu klæðninga er ekki það eina sem hefur áhrif á
brunaöryggi, heldur þarf að huga að heildaruppbyggingu útveggja
og efnisvali. Til að mynda ef um er að ræða útveggi með loftræstar
klæðningar, þá er ekki nægilegt að veðurhlífin sjálf sé úr
óbrennanlegu efni, t.d. málmklæðning. Einnig þarf að taka tillit til
efnanna í loftbilinu, einangrunar, lista, plötuklæðningar og
vindvarnarlags ef við á. Almennt er notast við óbrennanlega
einangrun og grind undir loftræstar klæðningar, enda eru kröfur
reglugerðar mjög skýrar gagnvart einangruninni eins og nánar
verður fjallað um. Vindvarnardúkar eru oftast úr brennanlegum
efnum en hægt að fá dúka sem stuðla takmarkað að eldútbreiðslu,
þrátt fyrir að vera brennanlegir. Þá er hægt að gera mismunandi
kröfur til dúkanna eftir aðstæðum, t.d. með tilliti til hæðar byggingar
eða frágangs á hæðarskilum.
Samkvæmt íslenskri byggingarreglugerð má eingöngu nota
hefðbundna frauðplasteinangrun (polystyrene) á steypta veggi og
ofan á steinsteypt þök. Á veggi þarf að klæða yfir einangrunina með
klæðningu í yfirborðsflokki B-s1,d0 skv. ÍST EN13501-1 [2] (flokkur 1),
og ekki má vera holrúm að einangruninni. Almennt hefur verið
miðað við múrkerfi á frauðplast, en ekki léttari plötur eins og gifs,
sem ekki veita eins mikið öryggi. Á þök með plasteinangun þarf að
setja þakpappa í flokki B oof(t2) skv. ÍST EN 13501-5 [9] (flokkur T),
en gera þarf auknar kröfur þar sem hætta er á eldsútbreiðslu í þaki
milli brunahólfa.
Brennanleg plasteinangrun er oft notuð í svokallaðar samloku-
einingar sem sjá má á mynd 4, sem leyfilegt er að nota í ákveðnar
gerðir húsa. Algengastar á íslandi eru stálklæddar einingar með
einangrunarkjarna úr steinull eða PIR/PUR plasteinangrun. Ekki er
leyfilegt að nota samlokueiningar með hefðbundinni frauðplast-
einangrun á íslandi þar sem að
einangrunin getur lekið niður við bruna
og valdið þannig aukinni hættu.
Samlokueiningar með plasteinangrun
er hægt að fá með mismunandi
brunaflokkun, bæði gagnvart yfirborðs-
eiginleikum (eldsútbreiðsla á yfirborði)
og brunahólfun (í gegnum eininguna).
samiokueiningar. Yfirborðsflokkun er allt frá því að vera óflokkaðar einingar, upp í
yfirborðsflokk B-s1,d0 skv. ÍST EN 13501-1 [2] (flokkur 1) og
brunahólfun getur verið allt að EI90 skv. ÍST EN13501-2 [10]. Margar
Mynd 4 Dæmi um uppbyggingu
...upp iyvindlnn
58