Þroskaþjálfinn - 2024, Qupperneq 9

Þroskaþjálfinn - 2024, Qupperneq 9
16 17 bókin var gerð með það að markmiði að vera fræðsla fyrir starfsfólk Hafnarfjarðar í málefn- um fatlaðs fólks. Hún skiptist í kafla og er þannig uppbyggð að hún skiptist í uppruna þjónandi leiðsagnar, svo kemur kjarni þjónandi leiðsagnar, þá er ítarleg umfjöllun um grunnstoðirnar fjórar og eins verkfærin fjögur. Handbókin endar svo á nokkrum reynslusögum frá starfsstöðvum Hafnarfjarðar og allar myndir í henni eru frá starfsstöðvunum. Einnig var notast við bæk- linginn sem forstöðumenn gerðu árið 2017 við gerð handbókarinnar. Allt fræðsluefni sem tengist þjónandi leiðsögn er aðgengilegt fyr- ir starfsfólk Hafnarfjarðar á workplace-síðu Hafnarfjarðarbæjar. Könnun í þjónandi leiðsögn Til að halda utan um starfið og hvernig gangi að vinna með hugmyndafræðina um þjónandi leið sögn gerir vinnuhópurinn árlega könnun með- al starfsmanna um gang mála. Niðurstöðurnar gefa upplýsingar um stöðuna og á hvað þurfi að leggja áherslu á næsta ári. Vinnuhópurinn fer svo yfir niðurstöður könnunarinnar á fundi með mentorum starfsstöðvanna. Þetta er mjög gott tól til að meta stöðu hugmyndafræðinnar á hverri starfsstöð fyrir sig ásamt því að bera saman svör milli ára, bera kennsl á mögulega vankanta og ráðast í úrbætur. Ráðgjöf fyrir starfsfólk Teymið er einnig til staðar fyrir starfsfólk Hafnar fjarðar, óski það eftir að fá fræðslu eða ráðgjöf inn á sína starfsstöð. Til þessa hefur ein starfsstöð óskað eftir fræðslu og ráðgjöf frá teyminu og gafst það vel. Kynning á teyminu Vinnuteymið í þjónandi leiðsögn samanstend- ur nú af fjórum yfirþroskaþjálfum/deildarstjór- um. Teymið er þverfaglegt og er gott að fá ólík sjónarhorn í þá vinnu sem er unnin í þágu íbúa, þjónustunotenda og starfsfólks Hafnarfjarðar- bæjar. Þorsteinn Már Bogason er yfirþroskaþjálfi á Svöluhrauni 19 og hefur starfað þar sem þroska- þjálfi frá 2016 og er í viðbótardiplómanámi í fötlunarfræði. Þorsteinn kom inn í vinnuhóp- inn í þjónandi leiðsögn árið 2021, en hefur verið mentor síðan 2017. Ragnheiður M. Rögnvaldsdóttir. Þorsteinn Már Bogason. Lea Margrét Thoraren sen er deildar stjóri á heim- ili fyrir fatlaða í Berjahlíð 2 og hefur starfað þar frá 2019. Hún er með B.Sc.-gráðu í sál fræði og meistaragráðu í mannauðsstjórnun og vinnu- sálfræði og hóf störf í teyminu í byrjun árs 2022. Lea Margrét Thoraren sen. Petra Ingvars­ dóttir. Unnir Jónsdóttir. Petra Ingvarsdóttir er deildarstjóri í íbúða kjarn- anum á Öldugötu 45, en þar hefur hún starfað frá því að hann var opnaður árið 2021. Petra er með BA-gráðu í félagsráðgjöf ásamt viðbótar- diplómu í fötlunarfræði og hefur verið í teyminu frá því 2020. Unnur Jónsdóttir er yfirþroskaþjálfi í skamm- tímadvölinni Hnotubergi og hefur starfað þar síðast liðin átta ár. Unnur er einnig með meistara- próf í lýðheilsu. Hún hefur verið í vinnuhópnum síðan yfirþroskaþjálfar/deildarstjórar tóku við af for stöðu mannahópnum sem sat í vinnuhópnum árið 2018. Upphaf þjónandi leiðsagnar í Skagafirði var þegar Kristinn Már Torfason, sem hefur stýrt inn leiðingu þjónandi leiðsagnar á Akureyri, var fenginn til að vera með kynningu á starfsdögum starfsfólks um málefni fatlaðs fólks á Norður- landi vestra haustið 2016. Mikil ánægja var með- al starfsfólks með þessa kynningu og í framhaldi Öflugt starf og góð reynsla í Skagafirði Ragnheiður María Rögnvaldsdóttir af því fór af stað vinna við að skipuleggja inn- leiðingu þjónandi leiðsagnar. Haustið 2018 var Kristinn Már fenginn til að halda fyrstu nám- skeið þjónandi leiðsagnar fyrir starfsfólk innan fjölskyldusviðs ásamt námskeiði fyrir mentora. Í dag eru starfandi mentorar í búsetuþjónustu, Iðju – skammtímadvöl og í stuðnings- og stoð- þjónustu sem er dagdvöl aldraða, heimaþjón- usta og liðveisla. Sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar sam- þykkti á fundi sínum 29. maí 2019 að þjón andi leiðsögn yrði grundvallarþáttur í hug mynda- fræði og aðferðum fjölskyldusviðs í þjónustu við fatlað fólk og aldraða ásamt valdeflingu (Þjónandi leiðsögn, bæklingur). Þess má geta að Skagafjörður er leiðandi sveitarfélag í þjónustu við fatlað fólk á Norðurlandi vestra og stýrir þjónustu við fatlaða í Húnavatnssýslunum. Inn- leiðing og vinna eftir hugmyndafræði þjónandi leiðsagnar og valdeflingar á því einnig við á þeim svæðum.

x

Þroskaþjálfinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þroskaþjálfinn
https://timarit.is/publication/1930

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.